Skráarsafn fyrir August, 2004

Aug 27 2004

Bandaríkjaferð 2: Cheek-a-gah

skrifaði í flokkinn Ferðalög

Þá er ég kominn til Chi-town. Það er ekkert eðlilega skrítið að vera kominn hingað aftur. Það eru ekki nema tvö ár síðan ég kláraði háskólann, en stundum er einsog það séu 20 ár síðan ég fór síðast frá Chicago.

Þá var ég alveg í öngum mínum yfir því að skilja eftir bandaríska kærustu mína og var alls ekki viss um að ég vildi fara aftur til Íslands, því að síðustu tveir mánuðirnir sem ég eyddi í Chicago eru sennilega með bestu mánuðum ævi minnar. En ég var búinn að ákveða að opna Serrano og því fór ég heim. Það er því skrítið að vera kominn aftur, því mér finnst ég lítið hafa breyst.

Ég gisti núna hjá Dan, besta vini mínum frá því í háskóla. Hann heimsótti mig til Íslands í fyrra, en hina vini mína hef ég ekki hitt síðan ég útskrifaðist. Dan býr í stúdíóíbúð í Wrigleyville, rétt hjá æðislegasta íþróttavelli í heimi, Wrigley Field. Þetta er æðislegt hverfi, sennilega einn skemmtilegasti hluti Chicago.


Ég kom frá Washintgon í gær. Síðasti dagurinn í DC var fínn. Ég tók þennan típíska minnismerkja rúnt, byrjaði hjá Jefferson minnismerkinu, svo Roosevelt, Lincoln, Kóreustríðið, Víetnamstríðið og að lokum seinni heimsstyrjöldin. Kíkti svo aðeins fyrir framan Hvíta Húsið. Fyrir 11.september var hægt að fara í túr um Hvíta Húsið að innan, en líkt og ansi mörgum byggingum er búið að loka Hvíta Húsinu fyrir ferðamönnum. Hvernig það eykur öryggi þessara bygginga skil ég ekki alveg.


Ég ætla að eyða næstu vikunni hér í Chicago. Ég hef náttúrulega séð allt í þessari borg, enda bjó ég hér í þrjú ár. Því ætla ég bara að taka hlutunum rólega, hitta alla vinina og heimsækja þá staði, sem ég hef saknað.

Einn af þessum stöðum er auðvitað Wrigley Field. Ég fór þangað í gær og sá snillinginn Mark Prior kasta á móti Houston Astros. [Cubs unnu glæsilegan sigur](http://chicago.cubs.mlb.com/NASApp/mlb/chc/news/chc_gameday_recap.jsp?ymd=20040826&content_id=838987&vkey=recap&fext=.jsp) í 45 gráðu hita og 300% raka. Ég hef aldrei á ævinni svitnað jafn mikið við það að sitja á sama stað í 3 klukkutíma. Sem betur fer voru sölumenn duglegir við að færa mér ískaldan Bud Light (já, og engin niðrandi komment um Bud Light drykkju, takk) :-)

Eftir leikinn hitti ég svo Dan og kærustu hans og við fórum niðrí miðbæ Chicago. Ef að Dan er snillingur í einhverju þá er það að finna ókeypis áfengi. Auk þess er enginn í heiminum jafn fyndinn og Dan þegar hann fær sér í glas. Allavegana, við fórum á einhverja viskí kynningu, sem Chivas Regal hélt á Sofitel hótelinu í Chicago.

Kynningin snérist í grundvallaratriðum um það að einhver Skoti reyndi að telja okkur trú um að viskí væri gott á bragðið og að besta viskíið kæmi frá austuströnd Skotlands. Well, this just in: Viskí er ENNÞÁ viðbjóður. Sama hvað ég reyndi og hversu miklu vatni ég bætti við viskíið, þá var þetta allt ódrekkandi. Eina leiðin til að drekka þetta var að bæta Ginger Ale útí viskíið. Dan tókst þó að drekka sinn skammt og því var hann talsvert hressari en ég í lok kynningarinnar.

Núna er helgin framundan og ég er virkilega farinn að njóta þess að vera í fríi. Ætla að sjá annan Cubs leik eftir tvo klukkutími (og þann þriðja á sunnudaginn) og ætla svo að skella mér á djammið í kvöld og annað kvöld.

Ég elska Chicago og elska að vera kominn aftur hingað. Á vissan hátt líður mér einsog ég hafi aldrei farið frá borginni.


Og að lokum, spurning dagsins: Af hverju geta ekki allir verið einsog ég og pantað venjulegt kaffi á Starbucks í stað kaffidrykkja með fjórtán sérhljóðum í nafninu. Það myndi stytta biðröð á þessum stöðum til mikilla muna.

*Skrifað í Chicago, Illinois klukkan 12.56*

8 ummæli hingað til

Aug 25 2004

Bandaríkjaferð 1: Washington DC

skrifaði í flokkinn Ferðalög

Jæja, þá er ég búinn að eyða nokkrum dögum hér í landi frelsisins. Kom hingað á laugardaginn og er búinn að gista hjá vinum mínum, Genna og Söndru. Þau búa í íbúð, ásamt ímyndunarveikum ketti, fyrir vestan Potomac ána, ekki langt frá Arlington kirkjugarðinum.

Ég er búinn að taka því sæmilega rólega hérna í DC, enda hef ég komið hingað tvisvar áður og séð alla helstu túristastaðina. Ég byrjaði komu mína á að heimsækja [uppáhalds pizzustaðinn](http://www.cpk.com) minn og svo fórum við, Genni og Sandra á djammið ásamt vinum þeirra. Á sunnudaginn kíkti ég svo á [Camden Yards](http://baltimore.orioles.mlb.com/NASApp/mlb/bal/ballpark/bal_ballpark_history.jsp) í Baltimore, þar sem ég sá baseball leik þar sem Baltimore Orioles [töpuðu](http://baltimore.orioles.mlb.com/NASApp/mlb/news/wrapup.jsp?ymd=20040822&content_id=835029&vkey=wrapup2004&fext=.jsp&c_id=mlb). fyrir Toronto Blue Jays.


Einhvern tekst mér alltaf að koma mér í vandræði á ferðalögum mínum. Mánudagurinn var frábært dæmi um það. Ég vaknaði snemma og ætlaði að skokka aðeins um hverfið. Þegar ég var búinn með hringinn áttaði ég mig á því að ég hafði læst vitlausri hurð á íbúðinni og var því læstur úti.

Það var ekkert alltof gott, því ég var ekki með neitt á mér þegar ég fór að skokka nema ipod-inn minn. Ég var ekki með neinn pening, ég var ekki með síma og hafði ekki hugmynd um það hvernig ég átti að ná í Genna eða Söndru til að hleypa mér inn.

Því eyddi ég öllum deginum, frá 9-5 utanhúss. Það var frekar erfitt, þar sem ég var ekki með krónu á mér og gat því ekki keypt mér neitt að borða. Ég reyndi að redda mér pening í banka, en þeir gátu lítið gert og því fékk ég ekkert að borða allan daginn, en tókst þó að sníkja mér vatnsglös á hinum ýmsu skyndibitastöðum :-)

En það, sem reddaði mér var að á iPod-inum mínum var ég með ævisögu Bill Clinton, sem er 6 klukkutíma löng í audio book útgáfu. Því eyddi ég deginum hlustandi á Bill segja ævisögu sína. Þannig að enn einu sinni bjargaði iPod-inn minn mér.


Þrátt fyrir að ég hafi komið til DC tvisvar áður, þá eru auðvitað fullt af söfnum og stöðum, sem ég hef ekki séð. Eitt af þeim söfnum er Ameríska Helfararsafnið. Þar er rakin saga Helfararinnar og til sýnis eru ýmsir hlutir tengdir Helförinni. Mjög áhugavert safn, sem ég eyddi dágóðum tíma á í gær.

Eftir það kíkti ég svo ásamt Genna og Óla atvinnurekanda hans og kærustu hans í golf. Fórum á golfvöll við Potomac ána, þar sem við spiluðum 18 holur. Ég var enn og aftur óþægilega minntur á hversu hræðilega lélegur ég er í golfi. Auk þess tókst Genna næstum því að henda mér útúr golfbílnum, þar sem hann er einhver sá all svakalegasti golfbílabílstjóri, sem sögur fara af.


Í dag ætla ég að taka smá rúnt um minnismerkin og ef ég hef tíma fara á Air & Space safnið. Svo á morgun held ég til Chicago.

*Skrifað í Washington D.C. klukkan 10.24*

5 ummæli hingað til

Aug 21 2004

Ó, Lou!

skrifaði í flokkinn Tónleikar

Veit ekki. Fór á Lou Reed í gær. Einn vinur minn hafði svikið mig á því að fara útaf einhverju stjórnmálabrölti, en mér tókst að redda boðsmiðum fyrir tvo vini mína og fór með þeim.

Æi, ég veit ekki. Er eiginlega nokkuð sammála þessu hjá [Dr. Gunna](http://www.this.is/drgunni/gerast.html). Ég þekkti ekki fyrstu 10 lögin, sem voru öll einsog þau væru spiluð af Phish, eða einhverri djammsveit. Voða gaman eflaust með fimm mínútna gítarsólóum, en mér leiddist og ég bað til Guðs um að hann myndi fara að spila eitthvað af Velvet Underground lögunum.

En þau komu bara aldrei. Jú, hann tók Venus in Furs og svo gjörsamlega kraftlausa útgáfu af Sweet Jane. Hef sjaldan verið eins fúll yfir tónleikaútgáfu af lagi einsog Sweet Jane. Það var einsog einhver hefði miðað skammbyssu á hausinn á honum og neytt hann til að taka lagið.

Ok, gaurinn var allt í öllu í einni bestu rokkhljómsveit allra tíma, en samt tekur hann bara tvö lög með þeirri hljómsveit á sínum fyrstu tónleikum í nýju landi. Það fannst mér verulega slappt. Ég get nefnt svona 15 Underground lög, sem ég hefði viljað heyra.

Allavegana, uppklappið var það skásta, hann tók þá Satellite of Love, Perfect Day og Walk on the Wild Side. Samt alls ekki nógu gott í heildina.


En ok, á víst flug seinna í dag. Ætla að reyna að uppfæra nokkrum sinnum frá Bandaríkjunum. Ok, bæ.

3 ummæli hingað til

Aug 19 2004

27

skrifaði í flokkinn Dagbók

Og án þess að neitt merkilegt hafi breyst í heiminum, þá varð ég 27 ára á þriðjudaginn.

Fokking magnað skal ég segja ykkur. Og þó, ég er bara sáttur.

Átti rólegan afmælisdag. Eða rólegan og ekki rólegan. Vinnan er búin að vera hreinasta sturlun síðustu daga. Þar, sem ég er að fara út og vegna þess að ég er fullkomlega ómissandi (ehm!) þá hef ég verið til klukkan 9-10 öll kvöld að vinna. Síminn minn sló persónulegt met í dag, svo mörg voru símtölin og það lítur út fyrir að ég verði í einhverju algjöru allsherjar stresskasti á morgun. Trúi því varla að ég sé að fara út eftir tvo daga.

Allavegana, það var allt brjálað í vinnunni á afmælisdaginn og var ég kominn heim um 8 leytið. Fór þá strax niðrí Iðnó, þar sem ég [horfði á Jón Baldvin](http://www.jenssigurdsson.com/entry/2004/08/18/23.28.22/index.html), mesta stjórnmálasnilling á Íslandi, halda ræðu. Hafði ætlað að hitta [PR](http://www.jenssigurdsson.com) & frú, en það var fullt útúr dyrum, þannig að ég var frammí anddyri allan tímann. Hitti þau hjónin þó eftirá og við fórum á Thorvaldsen (af öllum stöðum) og fengum okkur bjór í tilefni dagsins.


Í gær fór ég með frænda mínum á [Ísland-Ítalíu](http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=17751). Það var frábært og hef ég ekki skemmt mér jafn vel á landsleik síðan ég og Friðrik fórum á Ísland-Frakkland fyrir nokkrum árum. Allt stappað á vellinum (ég var í stúku, Guði (og KBBanka) sé lof), frábær stemning (ég var m.a.s. hás í dag) og frábær sigur á Nesta, Gattuso og hinum smjördrengjunum í ítalska liðinu. Ljómandi, alveg hreint. Á morgun, Lou Reed.


Annars, þá fer maður ”á tímamótum sem þessum” pínu að hugsa um hvað maður hefur gert á síðustu mánuðum. Lygilega lítið ef eitthvað er. Einhvern veginn rennur þetta allt saman í einhvert vinnu-brjálæði, djamm og endalaust stelpu-vesen.

Jú, ég fór til Rússlands eftir síðasta afmæli og það verður nú að teljast hápunkturinn á þessu síðasta ári. Þá [skrifaði]( http://www.eoe.is/gamalt/2003/08/18/18.51.56/) ég einmitt: ”Þetta er líka gott tækifæri til að jafna mig eftir allt vinnuálagið og vesen í einkalífinu undanfarnar vikur og mánuði.”
Einhvern veginn finnst mér ég vera á nákvæmlega sama punkti og ég var áður en ég fór til Rússlands. Þessi setning passar alveg jafnvel við mig í dag. Jú, ég er búinn að vesenast eitthvað í íbúðinni minni, svo hún lítur betur út, og ég er kominn mun betur inní vinnuna, en samt þá finnst mér einsog svo lítið hafi gerst. Það er ennþá alltaf eitthvað bölvað vesen á manni utan vinnu. Og kræst maður, þarf að fara að finna stelpu, sem er ekki á föstu eða nýhætt í sambandi. Það hlýtur að fara að koma. Ég hlýt að vera búinn að taka út þann skammt. :-)


Oft á tíðum fæ ég endurnýjaða trú á mannkynið. Ein af slíkum stundum átti sér stað þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni um níu-leytið í kvöld. Á einhverju stöðvarápi endaði ég á FM957. Þar var verið að spila Dry Your Eyes með [The Streets](http://www.the-streets.co.uk/)!!! (Já, þrjú upphrópunarmerki, þetta er svo merkilegt). Ekki nóg með það, heldur var þetta lag á FM-listanum!!! (Takið eftir, aftur þrjú upphrópunarmerki) Já, kraftaverkin gerast. Bæ ðe veij, ef þið hafið ekki hlustað á [The Streets](http://www.the-streets.co.uk/), hendið þá frá ykkur tölvunni og hlaupið útí næstu búð. Þessi gaur er snillingur.


Já, og svo fannst mér alveg ljómandi egósentrískt að setja mynd af sjálfum mér á afmælisdaginn við þessa afmælisfærslu. Svona til að vinir og vandamenn gleymi ekki því hvernig ég lít út á meðan ég er í Bandaríkjunum. Þetta er nú einu sinni blogg og fátt er meira egósentrískara en að halda úti bloggsíðu um sjálfan sig. Og hananú!


En núna er það USA. Var að tala við Genna vin minn og svo var ég að klára plönin með Dan, sem ætlar með mér til Las Vegas. Verð að segja að ég er að deyja úr spenningi. Þarf bara að klára tvo stress daga í viðbót og svo er þetta komið. Jibbí!

10 ummæli hingað til

Aug 19 2004

Nýjar þjóðir á Ólympíuleikunum

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Menn nýta sér margt í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum. Ansi [merkileg auglýsing](http://real.streamtoyou.com/gwb/victory_medium.mov).

“Freedom is spreading througout the world like a sunrise”.

Jammm.

Comments Off

Aug 17 2004

Sund á Ólympíuleikunum

skrifaði í flokkinn Íþróttir

Þrátt fyrir að pabbi minn hafi verið margverðlaunaður sundmaður, þá hef ég alla ævi verið blessunarlega laus við áhuga á sundi (auk þess, sem ég er alveg skuggalega lélegur sundmaður).

[Þetta blogg hjá Sverri Jakobs um sundkeppnina á Ólympíuleikunum](http://kaninka.net/sverrirj/010618.html) minnti mig á að setja fram byltingarkennda breytingatillögu mína á sundíþróttinni, sem ég hef verið að velta fyrir mér síðustu daga.

Mér hefur nefnilega alltaf fundist þetta verðlaunaflóð í sundi vera fáránlegt. Það er með ólíkindum að hægt sé að vinna kapp yfir sundlaug með mismunandi hætti. Þetta flugsunds, baksunds, skriðsunds dæmi er fáránlegt. Þetta er álíka og að keppt væri í 100 metra hlaupi, þar sem allir ættu að hlaupa venjulega, svo taka háar hnélyftur og því næst valhoppa á leiðarenda.

Það sjá allir að þetta er tóm steypa og aðeins gert til að verðlaunasafn sundfólks sé veglegra en annars íþróttafólks.

Því legg ég til eftirfarandi breytingartillögu:

Aðeins verður keppt í einni sundgrein á Ólympíuleikunum. Sú keppni er 100 metra sund með frjálsri aðferð. Ef einhver er fljótastur í skriðsundi, þá syndir hann skriðsund og ef einhver er fjótari í flugsundi, þá syndir hann þannig. Þarna yrði á einfaldan hátt hægt að sjá hver besti sundmaðurinn er, og hægt væri að gera keppnina mun meira spennandi.

Það nennir nefnilega enginn maður að horfa á 10 greinar í sundi. Ef þetta væri bara ein grein, þá myndi ég meira að segja horfa og þá gæti ég sagt ykkur hver væri bestur í sundi.

5 ummæli hingað til

Aug 16 2004

Bandaríkjaferð

skrifaði í flokkinn Ferðalög

Jæja, þá eru ekki nema 5 dagar þangað til að ég fer í frí. Ég ákvað að taka sumarfrí svona seint til að reyna aðeins að lengja sumarið, þrátt fyrir að ég geri mér ekki alveg grein fyrir því í hvað þetta sumar hefur farið.

Allavegana, ég er að fara til Bandaríkjanna á laugardaginn. Ætla að hitta fullt af gömlum vinum og verða í Bandaríkjunum í 4 vikur.

Planið er lauslega þannig að ég ætla að fljúga til Washington D.C., þar sem ég ætla að gista hjá Genna og Söndru, vinum mínum sem búa þar. Frá D.C. ætla ég að fara til Chicago, þar sem ég ætla að eyða lengsta tímanum, enda á ég flesta vini í þeirri borg. Ætla að gista hjá Dan vini mínum, sem býr rétt hjá [Wrigley Field](http://chicago.cubs.mlb.com/NASApp/mlb/chc/ballpark/chc_ballpark_history.jsp). Ég ætla að eyða um 10 dögum í Chicago, hitta vini, fara á baseball leiki og á djammið.

Frá Chicago fer ég til Las Vegas með Dan vini mínum (og kannski einni vinkonu okkar líka). Þar ætlum við að eyða helginni saman. Þau fara svo á sunnudegi, en ég ætla að eyða tveim dögum í að skoða Grand Canyon.

Næsta stopp er ekki alveg ákveðið, en ég ætla að hitta Grace vinkonu mína, sem býr í Los Angeles. Það gæti þó verið að við myndum bara hittast í San Fransisco og ég myndi eyða tímanum þar í stað L.A. Einhvern veginn heillar San Fransisco mig meira en Los Angeles.

En allavegana, þaðan ætla ég til New York, þar sem ég ætla að gista hjá Ryan, herbergisfélaga mínum frá því í [háskóla](http://www.northwestern.edu). Hann býr þar ásamt Kate kærustu sinni. Frá New York er það svo planið að taka lest niður til DC og þaðan heim til Íslands.

Þetta hljómar frekar mikið, en ég er að vona að þetta verði ekki dýrt. Fæ að öllum líkindum ókeypis gistingu alls staðar nema í Las Vegas (þar sem gistingin er fáránlega ódýr). Svo eru flugin innan Bandaríkjanna líka fáránlega ódýr.

En allavegana, get ekki beðið eftir því að komast burt. Sleppa við umtal, flækjur, vesen, stress og allt bullið hérna heima. Ég þarf frí.

3 ummæli hingað til

Aug 16 2004

Chavez áfram! Ó kræst!

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

0602chavez.jpgJæja, nú geta þeir á [Múrnum](http://www.murinn.is/eldra_b.asp?nr=1339&gerd=Frettir&arg=5) fagnað, því svo virðist sem að Hugo Chavez hafi [unnið þjóðaratkvæðagreiðsluna](http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/3569012.stm) um það hvort hann ætti að fá að sitja áfram.

Chavez er vondur forseti, sama þótt að Múrsverjar horfi með aðdáunaraugum til þess að sum verkefni hans þykji “minna mjög á fyrstu ár byltingarinnar á Kúbu”.

Venezuela er ríkt af olíulindum, en ótrúlega spilltum og vitlausum stjórnmálamönnum hefur tekist að klúðra öllum olíugróðanum og landið er eitt það fátækasta í Ameríku. Chavez lofaði öllu fögru þegar hann var kosinn fyrir fjórum árum, en hann hefur ekki staðið við margt af því.

Meðallaun eru núna á sama plani og þau voru í kringum [1950](http://www.economist.com/agenda/displayStory.cfm?story_id=3093539) og atvinnuleysi hefur aukist uppí 16%. Þetta hefur gerst þrátt fyrir að olíuverð sé með allra hæsta móti. Guð hjálpi Venezuela-búum ef að Chavez hefði verið við völd þegar olíverð var lágt.

Hann hefur einnig gert sem allra mest til að auka völd sín og hefur m.a. gert hæsta réttinn nánast sinn eigin, bæði með því að fjölga dómurum og með því að koma þar fyrir vinum og vandamönnum.

Þeir á Múrnum ættu að finna sér skárri þjóðarleiðtoga til að [verja](http://www.murinn.is/eldra_b.asp?nr=1339&gerd=Frettir&arg=5), heldur en Hugo Chavez.

**Uppfært**: Sverir J. [kommentar á þessa færslu á sinni síðu](http://kaninka.net/sverrirj/010609.html) og ég svara honum [hér](http://www.eoe.is/gamalt/2004/08/16/13.40.37/#3280).

2 ummæli hingað til

Aug 15 2004

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég er viðbjóðslega þunnur.


Þetta er allt þessu bévítans freyðivíni, sem ég drakk í gær, að kenna. Þvílíkt hörmungarástand, sem er búið að vera á mér í allan dag.

En nenni ekki þessu væli… Var í brúðkaupi hjá Borgþóri og Björk, vinum mínum, í gærkvöldi. Þar var nóg af léttvíni og ég varð frekar fullur. Hélt ræðu fyrir hönd vinanna. Vegna þess að við sýndum líka myndband þurftum ég að bíða með að halda ræðuna þangað til að sólin settist, til að hægt væri að horfa á myndbandið. Það varð til þess að ég var kominn veeeel í glas þegar ég hélt ræðuna. Ræðan var blaðlaus, hafði hripað nokkra punkta á blað, sem ég kíkti á. Hún var víst of löng og ég endurtók víst einhverja hluti nokkuð oft. En ég meina hei.

En brúðkaupið var frábært, þrátt fyrir að minnið sé að bjaga mig all svakalega í dag. Fór og keypti ís í þeirri barnalegu trú að ís myndi laga allt. Það hefur hins vegar ekki gerst. Öðru nær.


Mér finnst þessi [vefsíða fyndin](http://www.conservativematch.com/). Þetta er match-making síða fyrir íhaldsmenn. Sá auglýsingu fyrir þetta á Metafilter.

Ég setti reyndar einu sinni fram þá kenningu að hægri sinnaðar stelpur væri sætari en vinstri sinnaðar. Það hefur svo sem ekki verið vísindalega sannað, en held að það sé nokkuð til í þessu. Efast þó um að það sé sniðugt að leita sér að maka byggt á stjórnmálaskoðunum einsog þetta fólk virðist gera.


Úff, tveir dagar í afmælið mitt og vika þangað til að ég fer í frí til USA. Get ekki beðið.

Comments Off

Aug 13 2004

Tímamót

skrifaði í flokkinn Íþróttir

Fyrir ykkur, sem fylgjast ekki með fótbolta, þá eru stórtíðindi að gerast.

Málið er að uppáhaldsknattspyrnumaðurinn minn, Michael Owen er að fara til Real Madrid. Þetta er magnað. Owen hefur verið í gríðarlegu uppáhaldi hjá mér síðustu 3-4 ár. Það er því visst sjokk (sem ég er ekki alveg búinn að átta mig á) að hann skuli vera að fara.

Ég á bara erfitt með að sætta mig við að Michael Owen muni spila með Real Madrid, en ekki Liverpool á næsta tímabili.

Allavegana, auðvitað tjáði ég mig um þetta á Liverpool blogginu:

[Owen er farinn!](http://www.eoe.is/liverpool/gamalt/2004/08/13/00.03.18/)

Fannst passa að vísa á þetta, þar sem þetta hefur vissulega áhrif á mitt líf. Það er ekki á hverjum degi, sem uppáhaldsíþróttamaðurinn manns skiptir um lið. Síðasta viðlíka áfall var þegar Ruud Gullit var seldur. En samt er áfallið ekki eins svakalegt og ég bjóst við að það yrði.

Ein ummæli hingað til

Eldri færslur »