Skráarsafn fyrir July, 2005

Jul 18 2005

Pad Thai

skrifaði í flokkinn Almennt

Fokk, hvað Pad Thai á Krua Thai er gott.

Verst að þetta er ekki beinlínis hollasti matur í heimi.

Comments Off

Jul 18 2005

Upptökur

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Þetta er búinn að vera skrítinn en skemmtilegur dagur. Fyrir það fyrsta stóðu yfir upptökur á nýjum sjónvarspauglýsingum fyrir vörumerki, sem ég stjórna. Þess vegna var ég óvenju lítið inní vinnu, en var þess í stað niðrí Saga Film, þar sem ég fylgdist upptökum á auglýsingunni.

Hef aldrei fylgst með upptökum á svona auglýsingu fyrr, en þetta var nokkuð skemmtilegt. Þetta er einn af þessum hlutum, sem gera vinnuna mína skemmtilega og brýtur upp daglegt stress. Held að ég hefði hvort eð er ekki höndlað það að vera fyrir framan tölvuna í góða veðrinu, þannig að þetta var kærkomið.


Um hádegi fékk ég svo símtal frá Agli Helgasyni, þar sem hann bað mig um að koma í Ísland í Dag í kvöld til að ræða um [veðurfærsluna mína](http://www.eoe.is/gamalt/2005/07/11/19.18.41). Hann sagði að sér hefði verið bent á þessa færslu og vildi ræða hana við mig. Fyrsta hugsunin var að þetta væri eitthvað djók, en ég þekkti röddina hans, svo að það var ljóst að þetta væri alvara. Ég sagðist auðvitað vera til í þetta.

Þannig að ég fór snemma úr vinnunni, dreif mig heim, rakaði mig og keyrði svo uppá Stöð 2. Mætti voðalega tímanlega þangað uppeftir, en það virðist vera þannig að það gerist ekkert fyrr en að 5 mínútur eru í útsendingu. Þannig að ég sat bara þarna og las Séð & Heyrt. Svo þegar útsendingin var að byrja var ég drifinn í smink og svo inná sett.

Ég er ekki búinn að horfa á þáttinn, ætla að kíkja á hann á Stöð2 + eftir nokkrar mínútur, en mér fannst þetta ganga nokkuð vel. Var settur á móti einum veðurfræðingnum (ekki þó Sigga Storm, einsog Egill talaði um, heldur Guðríður sem flytur líka veðurfréttir á Stöð 2). Ég þuldi þar upp tölfræðina og uppúr því kom smá umræða. Það var þó enginn að mótmæla þessum niðurstöðum mínum. Eiginlega voru allir sammála um þetta. Einu mótmælin voru þau að það væri meiri rigning í Bergen. Svo viðurkenndi veðufræðingurinn að þau reyndu að finna svona tölur, sem myndu líta vel út fyrir Íslendinga. Svo sem alveg skiljanlegt, þar sem hún talaði um að fólk skammaði hana fyrir veðrið útá götu.

En þetta var fínt, fólkið var voða nice og þetta gekk vel fyrir sig. Eina var að þau gleymdu að plögga bloggið mitt. En ég meina hey.


**Uppfært (EÖE)**: Jæja, búinn að horfa á þetta. Þetta var bara nokkuð fínt. Hélt að ég hefði stamað eitthvað á Tíbet-dæminu, en það var voðalega ómerkilegt. Þannig að ég er bara nokkuð sáttur við þetta fyrsta sjónvarpsviðtal mitt.

7 ummæli hingað til

Jul 18 2005

Í í D

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Allir að horfa á Ísland í Dag klukkan 18.18 í kvöld. Umræðuefnið er geysi spennandi: [Leiðinlegasta sumarveður í heimi](http://www.eoe.is/gamalt/2005/07/11/19.18.41/index.php).

2 ummæli hingað til

Jul 17 2005

Dagurinn í dag

skrifaði í flokkinn Dagbók

Búinn að þrífa íbúðina mína. Búinn að hlaupa 8 kílómetra í sólinni.

Er á leiðinni í BBQ boð og svo á **SNOOP**!!! Jamm, þetta er góður dagur.


Fór á djammið á föstudaginn. Lá í leti í gær. Hef ekki skrifað á þessa síðu í heila fjóra daga. Magnað að maður skuli ekki hafa meira að segja eftir slíka hvíld.

Comments Off

Jul 17 2005

Atvinnu-auglýsing

skrifaði í flokkinn Vinna

Ein ummæli hingað til

Jul 13 2005

Hjólhýsi og wife swap

skrifaði í flokkinn Almennt

Magga fjallar um [hjólhýsaæði landans](http://maggabest.blogspot.com/2005/07/hjlhsarusl.html). Hún er besti bloggari landsins, segi ég og skrifa.


Á þessi Wife Swap þáttur virkilega að vera skemmtilegur? Ég náði ekki að standa uppúr sófanum eftir að [Liverpool leikurinn kláraðist](http://www.eoe.is/liverpool/gamalt/2005/07/13/20.56.38/) og festist yfir þessum þætti. Þetta er hryllilega leiðinlegt. Án efa í síðasta skipti sem ég hlusta á Bo Halldórs. “Nýjasta æðið í bandarísku sjónvarpi” my ass.

Ég er ferlega þreyttur. Fór í körfubolta eftir vinnu og svo komu nokkrir vinir í heimsókn til að horfa á Liverpool leikinn. Núna get ég varla staðið uppúr sófanum.


Færslan mín um [leiðinlega sumarveðrið](http://www.eoe.is/gamalt/2005/07/11/19.18.41) var listuð á [b2.is](http://www.b2.is) (gamla Batman) og það þýddi að 3000 manns skoðuðu þá færslu. Ekki einn af þessum þrjú þúsund kommentaði á færsluna, sem mér finnst magnað.

En allavegana, það er *ekki enn* búið að boða mig í Kastljósið til að tala um þessa stórkostlegu uppgötvun mína! Ég meina, *ég*, hagfræðingurinn Einar Örn uppgötvaði það að á Íslandi er leiðinlegasta sumarveður í heimi!!! Þetta er senninlega ein af fimm merkilegustu uppgötvunum Íslandssögunnar og mun sennilega hafa hræðilega afleiðingar fyrir íslenska þjóðarsál.

Veðurfræðingarnir í fréttunum passa sig á því að minnast alltaf á það þegar það er kalt í Evrópu eða rigning á Spáni, sérstaklega þegar það er sól á Austurlandi á sama tíma. Það er gert til að búa til þann ímyndaða rauveruleika að veðrið hérna sé eðlilegt og í einhverju samræmi við veður í öðrum löndum. Það er hins vegar bull.

En svona er þetta.

4 ummæli hingað til

Jul 12 2005

QOTSA og Sufjan Stevens

skrifaði í flokkinn Tónlist

Ég var að komast að því að “[Lullabies to Paralyze](http://www.metacritic.com/music/artists/queensofthestoneage/lullabiestoparalyze)” með Queens of the Stone Age er *helvíti góð plata*. Hún fellur í sama hóp og Time out of Mind, það er að hún byrjar svo hroðalega leiðinlega að ég gafst eiginlega uppá að hlusta á hana. Ég hlustaði nokkrum sinnum á hana stuttu eftir að hún kom út, en byrjunin er svo leiðinleg að ég dæmdi alla plötuna út frá henni. Það voru mistök.

Eiginlega byrjar “Lullabies” ekki af alvöru fyrr en á “In My Head”, sem er lag númer 6. Eftir það er platan virkilega góð. Fyrsta lagið á plötunni er djók, svo koma nokkur lög sem eru einungis *la la*. Eftir miðbikið, færist hins vegar fjör í þetta. *I Never Came* er að ég held eitt besta lag þessa árs og hin lögin eru öll virkilega góð, sérstaklega *Blood is love*, *Someone’s in the wolf* og *Broken Box*. Ja hérna…


En þessi plata er samt ekki jafn góð og [Illinois](http://www.metacritic.com/music/artists/stevenssufjan/illinois) með Sufjan Stevens. Sú plata er stórkostleg snilld. Gunni vinur minn mældi með henni við mig fyrir nærri því tveimur mánuðum, en ég var lengi að gefa henni sjens. Ég ætti að vita betur, því ég hlusta alltaf á ráðleggingar hans í tónlist. Og jú, platan er frábær.

Held að þetta sé besta plata ársins hingað til ásamt *Blinking Lights…* með Eels.

4 ummæli hingað til

Jul 12 2005

McD búningar

skrifaði í flokkinn Viðskipti

Þetta er stórkostlegt: McDonald’s [ætlar að eyða **80 milljónum bandaríkjadala** í að fá hip-hop tískufyrirtæki einsog SeanJohn, Tommy Hilfiger, Fubu](http://www.suntimes.com/output/news/cst-nws-mac06.html) og fleiri til að hanna nýja búninga á starfsfólk staðanna.

Ég hannaði Serrano búningana með einhverjum gaur hjá bolafyrirtæki á svona 15 mínútum og að mínu mati eru þeir umtalsvert smekklegri en McDonald’s búningarnir, þannig að þetta ætti að vera auðvelt verk.

2 ummæli hingað til

Jul 11 2005

Leiðinlegasta sumarveður í heimi

skrifaði í flokkinn Almennt

Ég er vanalega ekki mikill svartsýnismaður, en þetta veður hefur alveg stórkostleg áhrif á mig. Veðrið fer nær aldrei í taugarnar á mér á veturna. Mér er alveg sama þótt að veturnir séu harðir. Hins vegar vil ég hafa almennilegt sumarveður, þar sem ég get verið úti á stuttermabol, get labbað um bæinn án þess að fjúka og get grillað án þess að blotna.

Ég lýsti í [síðustu færslu](http://www.eoe.is/gamalt/2005/07/10/19.06.38) eftir hugmyndum að því hvort það væri eitthvað land í heimi, sem þyrfti að þola jafn ömurlega leiðinlegt sumarveður og við Íslendingar. Einhverjar tillögur komu, til dæmis Grænland, Falklandseyjar, Bhútan og Mongólía.


Ég ákvað að skoða þetta aðeins betur og fletta upp veður-upplýsingum frá þessum stöðum og bera saman við Reykjavík. Það er auðvitað ekki hægt að bera saman veðurfar í heilum löndum, þannig að ég miða við höfuðborgir. Niðurstöðurnar eru magnaðar:

Hérna er [meðalhitinn í Reykjavík](http://www.weather.com/activities/travel/businesstraveler/weather/climo-monthly-graph.html?locid=ICXX0002&from=36hr_bottomnav_business). Meðalhitinn í besta mánuðinum, Júlí, er Júlí með *heilar* 13 gráður.

Ok, hvaða staðir koma þá til greina sem kandídatar fyrir leiðinlegasta sumarveður í heimi? Prófum höfuðborgina í [Mongólíu](http://www.weather.com/activities/travel/businesstraveler/weather/climo-monthly-graph.html?locid=MGXX0003&from=36hr_bottomnav_business). Nei, meðalhitinn þar í besta mánuðinum er 22 gráður. Hvað með Moskvu? Nei, hitinn er líka [22 gráður í heitasta mánuðinum þar](http://www.weather.com/activities/travel/businesstraveler/weather/climo-monthly-graph.html?locid=RSXX0063&from=36hr_bottomnav_business), langt yfir Íslandi. Wellington á Nýja Sjálandi? Neibbs, hitinn er [19 gráður í bestu mánuðinum](http://www.weather.com/activities/travel/businesstraveler/weather/climo-monthly-graph.html?locid=NZXX0049&from=36hr_bottomnav_business). En Alaska (teygjum þetta aðeins, líkt og Alaska væri sér land)? Veðrið hlýtur að vera verra þar! Ha? Neibbs, hitinn í [besta mánuðinum þar](http://www.weather.com/activities/other/other/weather/climo-monthly-graph.html?locid=USAK0116&from=36hr_bottomnav_undeclared) er 18 gráður.

Í örvæntingunni minni þá ákvað ég að prófa **Grænland** og leitaði uppi [meðalhitann í Narsarsuaq](http://www.weather.com/activities/travel/businesstraveler/weather/climo-monthly-graph.html?locid=GLXX0005&from=36hr_bottomnav_business) (það eru ekki til upplýsingar um Nuuk). Og vitiði hvað?

**MEÐALHITINN Í NARSARSUAQ Á GRÆNLANDI ER HÆRRI EN Í REYKJAVÍK!!!**

Meðalhitinn í Narsarsuaq í júlí er 14 gráður, eða 1 gráðu hærri en í Reykjavík. Þetta er hreinasta sturlun!

Þannig að með öðrum orðum, þá get ég ekki fundið land með verra sumarveður en Ísland!

Hvernig getum við mögulega verið hamingjusamasta þjóð í heimi þegar að við erum með leiðinlegasta sumarveður í heimi? Eru allir nema ég á prozac?


**Uppfært (EÖE):** Ágúst Fl. er með [svipaðar pælingar á sinni heimasíðu](http://www.semsagt.net/s/2005/07/11/22.40.56.html) og hann kemst að sömu niðurstöðu og ég.

17 ummæli hingað til

Jul 10 2005

Sunnudagur til sjónvarpsgláps

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég fokking HATA þetta veður!

Í alvöru talað, á ekki að vera sumar hérna? Er einhver þjóð í HEIMINUM fyrir utan Grænland, sem þarf að þola annað eins veðurfar og við Íslendingar? Í alvöru talað!

Það er eflaust hægt að finna lönd, þar sem veturnir eru miklu verri, en er í alvöru hægt að finna land þar sem sumrin eru jafnömurleg? Kræst!


GSM símar geta verið erfið tæki. Til dæmis eru númerabirtar á öllum GSM símum. Segjum sem svo að þú viljir ná í ákveðna manneskju. Læturðu eitt símtal duga, þar sem að númerið sést á síma viðkomandi, eða hringirðu aftur og aftur og átt þá á hættu að líta út einsog geðsjúklingur þegar að viðkomandi sér 10 “missed calls” frá þér? Lífið væri einfaldara ef að enginn væri með GSM.


Annars er ég búinn að liggja í leti í dag. Ljómandi skemmtilegt alveg hreint. Kíkti útá lífið með vinum á föstudagskvöld. Ætluðum á Ólíver og vorum mættir þar um 11 leytið, en þar var gjörsamlega stappað. Þannig að við enduðum á Vegamótum. Aðsóknin á þann stað virðist algjörlega hafa hrunið eftir að Ólíver opnaði. Það var hálftómt inni alveg til klukkan 2 þegar dansgólfið byrjaði að fyllast af ofurölva 16 ára stelpum. Ljómandi skemmtilegt. Fengum okkur bara nokkra bjóra og vorum nokkuð rólegir.


Horfði á sjónvarpið í dag. Þar á meðal [Newlyweds](http://www.mtv.com/onair/dyn/newlyweds-nick_and_jessica/series.jhtml), sem er algjör snilld. Jessica Simpson er óþrjótandi uppspretta misgáfulegra kommenta.

Horfði einnig á The Apprentice. Það er eini raunveruleikaþátturinn, sem ég myndi vilja taka þátt í (kannski fyrir utan [Dismissed](http://www.mtve.com/article.php?ArticleId=4854) og amerísku útgáfuna af The Bachelor). Mér finnst alltaf einsog ég hefði getað gert svo miklu, miklu betur en þetta fólk í þættinum. Þetta snýst í raun langflest um eitthvað varðandi markaðssetningu og að starta einhverju nýju, sem ég held að ég gæti staðið mig vel í.

Kláraði líka að horfa á 24, sem endaði skemmtilega.

Já, og kláraði að horfa á Return of The King. Kannski er það bara ég, en mér finnst öll þessi Lord of the Rings sería vera fáránlega ofmetin. Þetta er ágætt, en alltof langdregið. Ég held að ég hafi horft á síðustu myndina í svona 8 hlutum.

12 ummæli hingað til

« Nýrri færslur - Eldri færslur »