Skráarsafn fyrir August, 2006

Aug 31 2006

Dylan kominn í hús

skrifaði í flokkinn Tónlist

Í kvöld fór ég í Skífuna á Laugavegi og keypti mér nýjustu Dylan plötuna. Þar með er það ljóst að ég mun ekki hlusta á aðra tónlist næstu vikurnar.

Þetta hef ég verið að hlusta á að undanförnu

**Bruce Springsteen – We shall overcome (The Seeger Sessions)** – Algjörlega æðisleg plata með Springsteen, þar sem hann tekur lög eftir Pete Seeger. Maður tárast, langar til að dansa og allt þar á milli. Klárlega ein af bestu plötum ársins

**Johnny Cash – American V: A Hundred Highways** – síðasta platan í American flokknum með Cash. Virkilega góð.

**Lily Allen – Alright Still**: Besta popp-plata ársins hingað til. Vonandi að JT platan toppi hana. :-)

**Thom Yorke – The Eraser**.

En núna fá þessar plötur hvíld og Dylan fær að njóta sviðsins. Einhvers staðar las ég að þetta væri fyrsta Dylan platan lengi þar sem maður tæki fyrst eftir tónlistinni og svo textunum. Ég er ekki frá því að tónlistin sé að grípa mig strax við fyrstu hlustun. Sennilega Workingman’s Blues #2 hvað sterkast svona til að byrja með.

3 ummæli hingað til

Aug 30 2006

BD

skrifaði í flokkinn Tónlist

Kallinn [er svalur](http://www.apple.com/ipod/ads/dylan/)!

Ein ummæli hingað til

Aug 28 2006

Flickr kortasnilld

skrifaði í flokkinn Myndir

Ég er rétt búinn að hrósa Flickr fyrir það hversu mikil snilld sú síða er þegar þeir bæta inn enn einni snilldinni, [kortum](http://flickr.com/photos/einarorn/map/).

Inní Flickr kerfið er semsagt búið að bæta inn þeim eiginleika að maður getur sett inn nákvæmlega hvar myndirnar voru teknar og svo getur maður séð þær á korti, annaðhvort á teiknuðu korti eða með gervihnattamynd. Þetta virkar auðvitað best með Bandaríkjunum, þar sem gervihnattamyndir af Bandaríkjunum eru í miklu betri gæðum en til dæmis myndirnar af Íslandi.

Ég prófaði þetta áðan og setti inn á [kort allar myndirnar úr Bandaríkjaferðinni minni](http://flickr.com/photos/einarorn/map/). Gæðin á kortunum eru svo góð að ég get sett myndirnar niður á nákvæmlega þá byggingu, þar sem þær eru teknar. Þið getið [skoðað kortið hér](http://flickr.com/photos/einarorn/map/). Nota bene, veljið endilega “hybrid” eða “satellite” í hægra horninu, þá sjáiði gervinhattamynd, sem er verulega flott.

9 ummæli hingað til

Aug 26 2006

Í kirkjugarðinum

skrifaði í flokkinn Myndir

.flickr-photo { border: solid 1px #000000; }
.flickr-yourcomment { }
.flickr-frame { text-align: left; padding: 3px; }
.flickr-caption { font-size: 0.8em; margin-top: 0px; }


Ég lesandi heimsbókmenntir Lonely Planet í Cimetiere du Pere Lachaise í París.


Ok, ég er semsagt búinn að koma því í lag að nú get ég bloggað í gegnum Flickr. Þarf reyndar að breyta íslensku stöfunum eftirá (veit einhver hvernig ég laga það?). Semsagt, ef þið smellið á myndina þá fariði inná Flickr síðuna mína.

6 ummæli hingað til

Aug 26 2006

Nýja Dylan platan

skrifaði í flokkinn Tónlist

Nýja Dylan platan kemur út á mánudaginn. [Rolling Stone gefa plötunni fullt hús, fimm stjörnur](http://www.rollingstone.com/reviews/album/11277554/review/11286830/modern_times) og segja:

>Dylan’s thirty-first studio record and his third straight masterwork.

Ég er spenntur!

2 ummæli hingað til

Aug 25 2006

Ég dýrka Flickr!

skrifaði í flokkinn Myndir

Ég hef vitað um [Flickr](http://www.flickr.com/) í nokkur ár og hef verið skráður þar inni í meira en tvö ár. En þangað til í síðustu viku þá hafði ég alls ekki nýtt mér möguleikana, sem síðan býr uppá.

Á sínum tíma eyddi ég miklu púðri í að koma upp [myndasíðunni minni](http://www.eoe.is/myndir/). Hún er vissulega smart (að mínu mati), en það var eilítið basl að uppfæra hana og svo gat ég ekki valið hverjir sjá myndirnar. Sumar myndir vil ég bara geta sýnt vinum og fjölskyldu.

Þannig að ég skráði mig á Flickr, keypti mér ársaðgang (sem kostaði einhverjar 2.000 krónur – djók verð!) og núna get ég sett þangað ALLAR mínar myndir. Ég held að ég geti hlaðið upp einhver 2 gígabæt á hverjum mánuði.

Núna er ég búinn að setja inn [flestar myndir síðustu tveggja ára](http://www.flickr.com/photos/einarorn/sets/) þangað. Allt frá [Bandaríkjaferðinni minni](http://www.flickr.com/photos/einarorn/sets/72157594247012755/) til [Slóveníuferðarinnar í vor](http://www.flickr.com/photos/einarorn/sets/72157594247455547/).

Ég ákvað að læsa sumum albúmum, sem bara vinir og fjölskylda geta séð. Þannig að ef þú ert vinur minn og vilt sjá allar myndirnar, þá verðurðu að skrá þig á Flickr og bæta [mér](http://www.flickr.com/people/einarorn/) við sem vini.

En allavegana, er búinn að setja haug af myndum inná Flickr [síðuna mína](http://www.flickr.com/photos/einarorn/sets/) og mun væntanlega uppfæra hana frá Suðaustur Asíu líka.

2 ummæli hingað til

Aug 24 2006

Myndbönd í ræktinni

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Á morgnana þegar ég hleyp inní World Class er ég vanalega með iPod í eyrunum. Oft á ég erfitt með að einbeita mér og augun leita á sjónvarpstækin þar sem ekki er nú mikið úrval af sætum stelpum á réttum aldri á þeim tíma, sem ég er þarna rétt fyrir hádegið (þó var smá vonarglæta í morgun, en það er annað mál).

Allavegana, maður byrjar ósjálfrátt að horfa á sjónvarpið þar sem PoppTV er vanalega í gangi.

Til þess að gera þessi langhlaup bærilegri fyrir mig, þá legg ég til við stjórn PoppTV eftirfarandi breytingar:

BANNA ALGERLEGA ÞETTA MYNDBAND MEÐ COLDPLAY!!!

Hafa í staðinn myndbönd með Pussycat Dolls á repeat allan tímann. Sérstaklega myndbönd þar sem [aðalsöngkonan](http://g.jubii.dk/big/Pussycat-Dolls/140816.jpg) er nánast sú eina, sem birtist. Meira af henni, minna af hinum – segi ég! Það má t.d. nota [þetta myndband](http://www.ifilm.com/player?ifilmId=2742081&refsite=7181).

Takk.

13 ummæli hingað til

Aug 23 2006

Change of plans

skrifaði í flokkinn Ferðalög

beach-th.jpgÞegar ég [byrjaði að skipuleggja](http://www.eoe.is/gamalt/2006/07/27/22.28.06/) fríið mitt fyrir nokkrum mánuðum var ég í góðu sambandi með stelpu, sem ég trúði að myndi endast. Þrátt fyrir að vera í sambandi var ég samt ákveðinn í að ferðast einn því að kærastan mín gat ekki komist með vegna skóla.

Þegar ég byrjaði að skipuleggja þetta allt, þá fannst mér það hljóma rosalega vel að fara til Indlands og Nepal. Fara í langar gönguferðir uppað grunnbúðum Everest, fara til múslimalanda einsog Bangladesh (enginn bjór) og fleira slíkt.

En núna þegar ég er ekki lengur í sambandi, þá breytast hlutirnir. Ég fann eftir að sambandið endaði að ég var ekkert sérstaklega spenntur fyrir ferðinni. Og þess vegna ákvað ég eitt kvöldið að breyta algerlega um stefnu. Fékk smá ráðleggingar frá [stelpu](http://palabjork.blogspot.com/) sem hefur ferðast um svæðin og ákvað að breyta. Því er ég núna að fara í tveggja mánaða ferðalag um…

**Suð-Austur Asíu**

Þetta er auðvitað AÐAL bakpokaferðalags-staðurinn, fullur af Evrópubúum, Könum og Áströlum með Lonely Planet bækur á lofti. Og af einhverjum ástæðum, þá þykir mér það alveg æðislega heillandi þessa stundina.

Ég hugsaði til síðasta ferðalags og hvenær mér leið best þá. Ég held að það hafi verið [á Roatan í Hondúras](http://www.eoe.is/gamalt/2005/09/15/19.41.57/). Þar kynntist ég fulltaf skemmtilegu fólki (og kærustu reyndar líka), slappaði af í strandbæ, lærði að kafa og djammaði svo á ströndinni á kvöldin. Það var æði og ég held að það séu varla til betri staðir en eyjarnar í kringum Tæland til að upplifa eitthvað svipað.

Þannig að planið er eitthvað á þessa leið: Fljúga til Bangkok og skoða mig um þar. Fara svo til Kambódíu (Pnom Penh, strandbæir og Angkor Wat) og fikra mig svo frá Suður-Víetnam alla leið upp til Hanoi, þaðan sem ég myndi taka flug til Bangkok. Þessi partur á að taka um mánuð.

Svo er planið að eyða seinni mánuðinum á Tælandi. Skoða landið, heimsækja fullt af eyjum, kafa, djamma og skoða lífið. Ef ég hef einhvern tíma gæti ég svo kannski kíkt líka yfir til Malasíu. En ég ætla ekki að plana þetta of mikið, heldur hafa bara mjög rúman tíma. Held að tveir mánuðir fyrir 3 lönd séu ágætis tími og að ég ætti að geta séð fulltaf hlutum.

Ég er orðinn alveg hrikalega spenntur!!!

11 ummæli hingað til

Aug 23 2006

Neðansjávarmyndir

skrifaði í flokkinn Tækni

Veit einhver hvar ég get keypt [svona vatnsheldan kassa](http://www.amazon.com/gp/product/B000EVQ0PO/ref=sr_11_1/102-0319617-6090526?ie=UTF8) utan um myndavélina, sem ég ætla að kaupa mér?

B000EVQ0PO.01._AA280_SCLZZZZZZZ_V57070691_.jpg

Ég get ekki keypt þetta í gegnum Amazon UK þar sem þeir telja þetta vera raftæki og senda því ekki til Íslands. Ég þarf helst að kaupa þetta á næstu tveim vikum.

17 ummæli hingað til

Aug 22 2006

12 kíló af hassi

skrifaði í flokkinn Almennt

Það er margt í þessum heimi, sem ég skil ekki.

Til dæmis það af hverju að [Íslendingur reynir að fljúga frá Amsterdam til Sao Paolo í Brasilíu](http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1219462) með 12 kíló af hassi í farangrinum! Af hverju reyna menn að smygla hassi með flugi? Og það til Brasilíu, sem á landamæri að Bólivíu, Kólumbíu, Venezuela, Perú og fleiri löndum þar sem framboð á þessu efni er ansi gott. Þetta er ótrúlega magnað.

3 ummæli hingað til

Eldri færslur »