Skráarsafn fyrir November, 2009

» Opin eða lokuð umræða - Páll Ásgeir Ásgeirsson. - Páll Ásgeir tekur saman hvaða bloggarar á Eyjunni eru með lokað á athugasemdir.  Skemmtilegur listi. (0)

Nov 11 2009

Aðeins um skattahækkanir

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Ég á ansi marga vini sem eru Sjálfstæðismenn.  Það er ein afleiðing þess að vera fæddur í Garðabæ og hafa svo farið í Verzló. Það gerist því undantekningarlaust þegar að skattahækkanir ríkisstjórnarinnar eru viðraðar að ansi margir á Facebook hjá mér fríka út.  Öskra hvað þetta sé hræðilegt, að þessi vinstri stjórn sé ómöguleg, byrja að uppnefna flokkana í stjórninni, segja að allt sé ómögulegt með flugfreyju sem forsætisráðherra og svo framvegis.

Fyrst gerðist þetta þegar að skattar á áfengi og tóbak voru hækkaður.  Þá þótti það nú merki um að allt væri að fara til fjandans.  Allir ætluðu að flytja burt frá Íslandi og svo framvegis.  Það sama gerist núna þegar að hærri tekjuskattur fyrir þá hæstlaunuðustu er nefndur.

* * *

Reyndar er nóg af rangfærslum þegar að fólk talar um þessar skattahækkanir (sem hafa jú ekki verið kynntar formlega).  Sumir halda að manneskja með 499.000 í laun borgi miklu minna en manneskja með 501.000 í laun en staðreyndin er auðvitað sú að samkvæmt þessum tillögum – einsog fjallað hefur verið um þær – þá borgar sá með hærri launin bara hæsta skatt af tekjunum sem eru umfram 500.000 krónur. (sjá hérna ágætis pistil um hvað þetta kostar hvern tekjuhóp)

Þessu virðast margir ekki hafa áttað sig á og með því má eflaust skýra hluta af æsingnum í sumum.  Þetta er bein afleiðing af því að þessum hugmyndum um skattahækkanir sé (að því er virðist) lekið í fjölmiðla.  Það veldur því að umræða einkennist oft af ranghugmyndum fólks þar sem að hugmyndirnar eru ekkert kynntar formlega og útskýrðar almennilega fyrir fólki.

* * *

Miðað við aðstæður líst mér ágætlega á þessar tillögur.

Aðstæðurnar eru þannig að ríkissjóður er rekinn með 150 milljarða halla.  Það gengur ekki að velta þeim vanda bara áfram til barna okkar, heldur verðum við að takast á við vandann núna.  Til þess eru tvær leiðir.  Annaðhvort að skera niður eða auka tekjur.

Ég tel að það eigi að gera meira í niðurskurði á mörgum sviðum.  Einkafyrirtæki eru að gera það á hverjum degi og það getur ríkið líka. Ég tel að ekki hafi verið nóg gert eða allavegana hefur ríkisstjórnin ekki sýnt nægilega fram á það hvar hún ætlar að spara.

En við *verðum* líka að ná í frekari tekjur fyrir ríkissjóð.  Annað kemur hreinlega ekki til greina, nema að við fórnum algerlega okkar heilbrigðis- og menntakerfi.  Og við náum bara í auka tekjur fyrir ríkissjóð með hærri sköttum og gjöldum.

Ríkisstjórnin hefur lagt til ýmsa skatta.  Mér fannst til dæmis skattar á álver vera góð hugmynd.  En af einhverjum óskiljanlegum ástæðum þá berst SA bara fyrir hagsmunum mannfárra verksmiðja, en ekki fyrir hagsmunum mannaflsfrekari smærri fyrirtækja.  Því virðist ríkisstjórnin ætla að draga í land með þá skatta og hækka frekar tryggingargjald (maður hlýtur að velta því fyrir sér hvað minni fyrirtæki séu almennt séð að gera í SA).  Einnig hafa verið lagðir á ákveðnir neysluskattar, sem ég er almennt séð mótfallinn – en ég get ekki mótmælt mikið í því ástandi sem núna er.

* * *

Og svo eru það skattar á laun.  Ég er búinn að rökræða við fulltaf fólki á netinu síðustu daga.  Mörgum finnst ekkert jafnræði í því að fólk borgi mismikla skatta og sumir vilja meira að segja flatan krónuskatt.  Slíkar hugmyndir finnst mér fráleitar.

Ég hef alltaf talið að sanngjarnasta skattkerfið í velferðarþjóðfélagi sé að þeir sem eru með hæstu launin borgi hlutfallslega mest.  Þeir sem eru með lægstu launin borgi hlutfallslega minnst.  Ég get ekki séð annað en að þessi skattahækkun stuðli nákvæmlega að því.  Þeir sem eru með lægstu launin fá annaðhvort skattalækkun eða halda sömu skattprósentu.  Þeir sem eru með há laun borga hærri skatta.  Einstaklingur með 600.000 borgar 16.900 aukalega á mánuði. Sumir vilja meina að 5-600.000 krónur séu í raun frekar litlar tekjur. En ef 600.000 eru litlar tekjur þá eru 300.000 væntanlega ennþá minni tekjur og varla er sanngjarnt að fólkið með 300.000 beri þyngri byrðar. Meirihluti landsmanna er eftir allt með tekjur langt undir 600.000 krónum.

Enn sem komið er hefur enginn í þessum umræðum mínum á netinu geta bent á sanngjarnari leið til að skapa auknar tekjur fyrir ríkissjóð.  Einu rökin sem menn virðast hafa er að þetta muni minnka skatt-tekjur ríkissjóðs.  Það má vel vera að einhverjir kunni að vinna minna og að einhverjir svíki undan skatti.  En að svona hófleg skattahækkun muni leiða til allsherjar svindls tel ég vera afskaplega ólíklegt.

Þeir sem eru á móti þessari skattahækkun, sérstaklega ef þeir eru stjórnmálamenn að atvinnu, verða að benda á hvaða leiðir til tekju-aukningar hjá ríkisstjóði séu sanngjarnari. Ég hef allavegana ekki fundið þær.

10 ummæli hingað til

Af meintri brjálsemi ríkisstjórnar | Grímur Atlason. - Grímur skrifar fínan pistil um skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.  Ég er sammála. (0)

Kazakhstan's radioactive legacy - The Big Picture - Boston.com.  - Á 40 ára tímabili sprengdu Sovétmenn 456 kjarnorkusprengjur á tilraunasvæði í Norð-Austur Kazakstan.  Enn þann dag er skaðinn gríðarlegur, jafnvel fyrir nýfædd börn.  Þessi myndasería á Big Picture er hræðilega sorgleg og eflaust ekki fyrir viðkvæma. (0)

Nov 08 2009

Landakort

skrifaði í flokkinn Dagbók,Ferðalög

Í gesta/tölvu/lærdóms herberginu okkar hérna á Götgötunni er ég búinn að hengja upp heimskort og byrjaður að setja pinna fyrir þá staði, sem ég hef komið á (bláir pinnar fyrir mig, rauðir fyrir Margréti).

Ég hef lengi ætlað að framkvæma þessa hugmynd. Ég man alltaf eftir atriði úr The Mask (þessari frá 1985) þar sem að aðalkarakterinn hafði merkt inná Bandaríkjakort þá staði sem honum langaði til að heimsækja. Fyrir nokkrum árum fékk ég þá flugu í höfuðið að ég yrði að setja upp svona kort með þeim stöðum, sem ég hef komið á.

Þannig að ein af fáum kröfum mínum varðandi innréttingar hérna í íbúðinni var sú að setja í eitt herbergið upp svona kort. Ég pantaði það fyrir einhverjum vikum frá Bandaríkjunum og lét setja það á mjúkan bakgrunn hérna í Stokkhólmi og núna er það loksins komið upp.

Kortið er risastórt (sennilega um tveir metrar á lengd) og það er magnað að sjá hversu gríðarlega stóran hluta heimsins maður hefur aldrei komið nálægt. Ég hef heimsótt mjög stóran hluta Ameríku (flestallt merkilegt í Bandaríkjunum og alveg niður til Buenos Aires í Argentínu – en þó lítið fyrir sunnan og norðan þá staði). Og svo hef ég heimsótt stóran hluta Evrópu. En utan þess hef ég ekkert komið til Afríku, langstærsta hluta Asíu, Eyjaálfu og allra litlu eyjanna í Kyrrahafi. Það er nóg eftir að sjá.

7 ummæli hingað til

Sonicsgate - Virkilega góð heimildamynd um það hvernig Seattle Supersonics liðið var flutt til Oklahoma á ótrúlegan hátt.  Það er magnað að í amerískum íþróttum sé hægt að færa lið á milli borga og skilja þar með eftir þúsundir heitra aðdáenda án uppáhaldsliðsins síns.  (via Kristján Atli) (0)

The Jobless Rate for People Like You - Interactive Graphic - NYTimes.com. - Á þessari NYTimes síðu getur maður skoðað atvinnuleysi í Bandaríkjunum eftir menntun, aldri og kynþætti.  Það er magnað að leika sér með þessar tölur.  Atvinnuleysi meðal svartra án framhaldsskólaprófs á aldrinum 15-24 er 48,5% - fyrir hvíta í sama hópi er það 25,6%.  Þeir sem koma verst útúr atvinnuleysinu eru minnihlutahópar með litla menntun. (0)

"I Love You, Mr. Star Wars" And Other Famous Movie Quotes - Supercuts - Videogum. - Leikarar segja nöfn myndanna sem þeir eru að leika í. (0)

Nov 03 2009

AIK, Dawkins, Wall Street og sænskt bíó

skrifaði í flokkinn Dagbók,Netið

Já já já – punktablogg

  • Margrét bloggar um Så som i himmelen, mjög fína sænska mynd sem við horfðum á um þarsíðustu helgi.
  • Um þessa helgi leigðum við bíl og fórum í Skärholmen og svo í IKEA í Kungens Kurva.  Þegar þú kemur inní þá búð blasir við þér skilti þar sem þú ert boðinn velkominn í stærstu IKEA búð í heimi.  Ég veit ekki hverjum þykir það spennandi – ég er ekki einn af þeim.  En ég komst þó sæmilega heill úr þessari ferð.
  • Við keyptum tvær kommóður, aðra fyrir gesta/tölvu/lærdóms-herbergið og hina fyrir ganginn.  Þegar ég hafði baksað við það í nokkra klukkutíma að setja þetta saman þá komumst við að því að gólfið í ganginum (sem er upprunalegt trégólf) var svo skakkt að kommóðan getur ekki staðið nema að undir henni séu verulega þykk blöð.  Margrét bloggaði líka um þetta.
  • Annars horfði ég á sunnudaginn AIK verða Svíþjóðarmeistari í fótbolta.  Ég hef verið dálítið óviss um það hvaða lið ég styðji í sænska boltanum.  AIK er eina liðið sem ég hef séð spila og það fær mesta athygli hérna í Stokkhólmi.  Ég bý hins vegar á Södermalm og þar er meiri stuðningur við Hammarby (liðið sem að Pétur Marteinsson spilaði lengi með) en það lið er búið að vera hræðilegt í sumar og þeir enduðu tímabilið á því að falla úr efstu deild.  Núna vona ég bara að AIK komist inní riðlakeppni Meistaradeildarinar á næsta tímabili.  Það gæti verið skemmtilegt.
  • Í fyrradag horfðum við svo á fyrri hlutann á Root of All Evil?, sem er nokkuð skemmtileg sería þar sem að Richard Dawkins fjallar um trúarbrögð.  Ég las The God Delusion í Indónesíu og þetta er ágætis viðbót.
  • Við leigðum líka (erum reyndar í nokkurs konar Netflix klúbb sem heitir Lovefilm þar sem við fáum myndir sendar með pósti) Wall Street.  Ég horfði á hana fyrir allmörgum árum og datt í hug að það væri sniðugt að sjá hana aftur.  Hún eldist sæmilega vel.

Engin ummæli enn

Örvitinn: Klikkaðar konur. - Matti bendir á athyglisverðar umræður um kannabis og detox.  Ég skemmti mér við að lesa þetta í gærkvöld. (0)

« Nýrri færslur - Eldri færslur »