maí 05, 2004

Potturinn

Ég er sammála Tómasi með þessa eyjuafsökun, mér finnst hún í raun og veru ekki halda. Bandaríkjamenn geta sótt efni frá Evrópu og Evrópubúar sækja efni til Bandaríkjanna. Síðast þegar ég vissi þá var ekki hægt að ferðast á landi milli þessara staða.

Ég vænti þess einnig að rekstur sæstrengsins sé nokkuð fastur kostnaðarliður. Þess vegna finnst mér sárt að þurfa að borga þúsundir aukalega við að hlaða niður fullkomlega löglegu efni, sem ég hef borgað fyrir hjá útgefendum efnisins.

Einhvern veginn grunar mig að þessi símafyrirtæki rukki fyrir þetta af því að þau geta það, en ekki vegna þess að kostnaðurinn sé svona hár.

Posted by einarorn at 05.05.04 22:35
Comments
Post a comment









Remember personal info?