« Dillo | Aðalsíða | Frænkur »

Apple

maí 22, 2000

Það var grein í Newsweek fyrir 2 vikum, þar sem Apple eigandi spyr sjálfan sig hvort það sé þess virði að vera trúr Apple notandi núna þegar Microsoft hefur einokun á öllum PC-markaðinum og flest forrit eru gerð upphaflega fyrir PC. Fyrsta tölvan mín var Macintosh Plus, sem ég átti í nokkur ár og reyndist mér mjög vel.

Ég færði mig svo yfir á PC og átti PC tölvur alveg þangað til að ég keypti mér iBook í haust. Fyrir mig þá hefur iBook tölvan mín reynst betur en PC-tölvurnar, sem ég átti. Stýrikerfið er einfaldlega mun betra en Windows. Einnig er uppsetning á öllum aukahlutum og forritum mun öruggari og einfaldari en á PC. Ég held þó að ég vilji sjá hvernig Mac OS X reynist áður en ég kaupi mér næstu Apple tölvuna

Einar Örn uppfærði kl. 16:30 | 143 Orð | Flokkur: Tækni



Ummæli (0)


Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?