« september 20, 2000 | Main | september 22, 2000 »

Alþjóðlegt prófessoralið

september 21, 2000

Þá erum við búin að koma mér ágætlega fyrir hérna í íbúðinni. Ég byrjaði í skólanum í gær og líst mér bara ágætlega á tímana. Ég er í rússneskum bókmenntum, suður-amerískum bókmenntum, hagfræði og stærðfræði. Prófessorarnir virðast vera fínir. Einn bandaríkjamaður, sem kennir mér hagfræði, franskur stærðfræðikennari, einn Rússi og svo argentísk kona, sem kennir mér bókmenntir.

57 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Skóli

Bandaríkin

september 21, 2000

Ég var að lesa grein á heimasíðu Ágústs F. Hún endaði á þessum orðum:

Maðurinn sem lifði í eigin veröld. Maðurinn sem var, einsog bandarískur almenningur, einfaldur.Maður er nefndur... Ronald Reagan.

Það er gaman að sjá að Ágúst Flygering hefur fullkomnan skilning á bandarískum almenningi og á auðvelt með að alhæfa um Bandaríkjamenn.

Annars fer fátt fleira í taugarnar á mér en þegar misfrótt fólk er að fullyrða svona um fólkið, sem býr í sama landi og ég. Ég spyr Ágúst, hvaðan koma fötin þín, hvaðan eru bíómyndirnar, sem þú horfir á eða sjónvarpsefnið. Hvaðan eru vefsíðurnar, sem þú lest eða tölvuleikirnir, sem þú spilar eða tölvuforritin, sem þú notar? Hvernig getur þjóð, sem er svona voðalega einföld haft svona mikil áhrif jafnt á stjórnmálasviðinu, sem og á því menningalega?

Bandaríkin er frábær þjóð. Þjóð, sem laðar að sér gáfaðasta og hæfasta fólk í heiminum. Þar búa margir af hæfustu prófessorum, íþróttamönnum og listamönnum í heimi. Víst er fullt af fólki, sem er ekki ýkja frótt um alheiminn, en taka verður tillit til þess að Bandaríkin er það stórt land að utanríkismál eru ekki jafnmikilvæg fyrir Bandaríkjamenn og Íslendinga.

Það er gott að búa í þessu ágæta landi.

198 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33