« Ráðgjafar | Aðalsíða | Cast Away »
Temptation Island
Prófessorinn minn í markaðfræði, var að tala um þáttinn Temptation Island á Fox, sem hann sagði að væri núna uppáhaldsþátturinn sinn. Þessi sería byrjaði í síðustu viku og erum við Hildur búin að horfa á báða þættina. Þvílík snilld! Fox er sama stöðin og sýndi snilldina "Who wants to marry a multi-millionaire?", en með Temptation Island þá toppa þeir sig algjörlega, því þessi þáttur er búinn að vekja jafnvel enn meira umtal og hneikslun meðal íhaldssamra Bandaríkjamanna.
Þátturinn byggist á því að 4 pör, sem eru búin að vera nokkuð lengi saman er send á litla eyju. Þar taka á móti þeim 8 strákar og 8 stelpur, sem öll eru á lausu. Pörin eru svo aðskilin, strákarnir fara á sinn hluta eyjarinnar og stelpurnar á hinn. Þar taka svo á móti þeim krakkarnir, sem eru á lausu og eiga þau að reyna að tæla þau í framhjáhald. Ég man ekki hvort það er einhver vinningur í boði, en takmarkið er að láta reyna á hvort samböndin þola allar freistingarnar. Það er vægast sagt mjög fróðlegt að horfa á þessa þætti og þetta heldur manni við efnið þangað til að næsta syrpa af Survivor byrjar eftir Super Bowl.
Ummæli (0)
Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".
Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote
Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.
|
|
Ummæli:
Muna upplýsingar?
|