« X | Aðalsíða | Stórkostlegar uppljóstranir!! »

Windows XP

febrúar 17, 2001

Ég var að lesa athyglisverða grein á MSNBC um nýja Windows stýrikerfið, XP. Þar heldur greinarhöfundur því m.a. fram að Microsoft hafi loksins náð því að toppa Apple í einfaldleika stýrikerfisins. Ég veit ekki hvort þetta er rétt hjá honum, því ég hef ekki prófað Windows XP. Það er þó gott mál að stýrikerfið skuli vera byggt á Windows 2000, sem er mun öruggara en Windows 98.

Ástæðan fyrir því að ég skipti yfir í Mac var nefnilega sú að ég fékk mig fullsaddann á ruglinu í Windows 98, sem krassaði að minnsta kosti 4-5 sinnum í viku. Ég er ekki fullkomlega ánægður með Apple stýrikerfið, en það er þó mun einfaldara og þægilegra en Windows 98. Það er nokkuð ljóst að ef OS X verður ekki stabílt, þá verður maður að skoða vel hvort maður haldi áfram að kaupa Apple. Ég hef þó fulla trú á því að OSX muni uppfylla mínar væntingar.

Einar Örn uppfærði kl. 20:56 | 155 Orð | Flokkur: Tækni



Ummæli (0)


Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu