« mars 02, 2001 | Main | mars 05, 2001 »

Priceline

mars 04, 2001

Það er sérstök tilfinning að kaupa flugmiða á Priceline.com. Maður getur fengið mjög ódýra miða á þessari síðu, en hins vegar veit maður ekki nákvæmlega hvenær dags maður fer og maður er einnig ekki viss hvort þeir samþykkja verðið, sem maður býður. En maður sparar sér pening, svo það er þess virði.

Ég var í gær að kaupa miða fyrir Spring Break og sparaði mér yfir 100 dollara með því að kaupa á Priceline. Þetta er svipað og í fyrra þegar við fórum til New York, en þá spöruðum við okkur yfir 200 dollara samtals.

Annars erum við Hildur að fara til New Orleans í spring break. Þar ætlum við að vera hjá Genna og Söndru, sem eru í gamla skólanum hans Shaquile O'Neal, LSU. Einnig ætla PR og frú að koma frá D.C. Það verður ábyggilega gaman í "The Big Easy".

145 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Netið

Grein

mars 04, 2001

Ég er búinn að skrifa nýja grein, sem birtist á Hrekkjusvínum.

Annars er ég þunnur eftir djamm í gær. Til að toppa það, þá reif ég mig upp klukkan 11 í morgun til að horfa á hrikalega lélegt Liverpool lið tapa fyrir Leicester. Það var ekki gaman. Ég er þó sannfærður um að pizzan, sem er á leiðinni muni laga allt.

62 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Dagbók

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33