« maí 15, 2001 | Main | maí 17, 2001 »

Liverpool Evrópumeistari!!!

maí 16, 2001

Ég er ein taugahrúga eftir að hafa horft á leikinn. Nágrannarnir halda sennilega að ég sé eitthvað geðveikur. Þetta er einhver sá allra skemmtilegasti fótboltaleikur, sem ég hef séð þvílíkt lið!!

31 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Íþróttir

Lopez

maí 16, 2001

Ég er kominn með nett ógeð á Jennifer Lopez. Ég skil í raun ekki af hverju flessi manneskja er fræg leikkona og söngkona. Hún hefur ekki leikið í neinni góðri mynd og ekki samið eitt gott lag.

Núna er hún að fara að gera einhverja sjónvarpsþætti um æsku sína. Hver í ósköpunum hefur áhuga á að horfa á slíkt? Þessari manneskju tekst að koma sér inná hvern einasta atburð og inní hvern einasta fréttatíma. Þetta er orðin alger geðveiki.

80 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Sjónvarp

Davids

maí 16, 2001

Ég vil bara segja að Edgar Davids er fífl. Þetta þýðir að það verður erfitt fyrir Holland að verða heimsmeistarar á næsta ári, einsog ég var búinn að plana.

30 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Íþróttir

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33