« ágúst 08, 2001 | Main | ágúst 13, 2001 »

Verslunarmannahelgi

ágúst 09, 2001

Í fyrsta skipti síðan ég bjó í Mexíkó var ég ekki heima um verslunarmannahelgi. Þannig að í staðinn fyrir að horfa á Jet Black Joe með vinum mínum var ég staddur hérna í Chicago í 40 stiga hitabylgju.

Okkur Hildi fannst þó nauðsynlegt að gera eitthvað þessa helgi og halda hana hátíðlega. Við fórum því í útilegu með Kate og Ryan, vinum okkar. Við keyrðum í 3 tíma suð-vestur af Chicago í Kickaboo State Park. Þar vorum við með flott tjaldstæði, þar sem við grilluðum grænmetisborgara (já, grænmetisborgara), kveiktum varðeld, átum heil ósköp af S'mores, spiluðum domino's og drukkum Budweiser.

Þetta var svona amerísk útgáfa af verslunarmannahelgi og var mjööög gaman.

112 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Dagbók

Pistlar um fótbolta

ágúst 09, 2001

Lang skemmtilegustu pistla um fótbolta, sem ég hef lesið, skrifar Paul Tomkins á síðunni BootRoom. Þessi síða er tileinkuð Liverpool, sem er einmitt besta lið í heimi.

Allavegana, þá mæli ég með þessum pistlum fyrir alla. Nýjasti pistillinn fjallar um leikinn um Góðgerðarskjöldinn.

45 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Íþróttir

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33