« Kvikmyndagagnrýni í dagblöðum | Aðalsíða | Fjölbreytt helgi - NFL og Destiny's Child »

Netfíkn

ágúst 24, 2001

Ég held að það sé nokkuð ljóst að ég er frekar háður netinu. Björgvin Ingi skrifar á síðunni sinni að hann eigi erfitt með að halda sér frá því að skoða tölvupóstinn sinn á nokkurra mínútna fresti. Ég er að glíma við svipað vandamál. Ég er alltaf að kíkja á póstinn minn, í von um að eitthvað nýtt sé þar. Einnig kíki ég alltof oft á sumar síður á netinu í von um að þær hafi verið uppfærðar.

Núna er í gangi leikur á milli Liverpool og Bayern Munchen um Super Cup, það er hvað sé besta lið í Evrópu. Þessi leikur er sýndur á minni uppáhaldsstöð, Fox Sports World, en þar sem ég er í vinnunni, þá verð ég að láta mér duga að taka hann upp. Vegna þess þarf ég að forðast flestar þær vefsíður, sem ég skoða reglulega til að ég sjái ekki úrslitin, og ég þori ekki að skoða póstinn min af ótta við að einhver hafi í kvikindisskap sent mér úrslitin. Þetta er auðvitað mjög erfitt og ég hef átt erfitt með að hemja mig síðasta klukkutímann.

Ég reyni að neita fíkn minni og segi bara einsog Björgvin: Ég er ekki háður tölvum, ég get alveg lifað í dag án þess að lesa tölvupóstinn minn (á klukkutíma fresti)

Einar Örn uppfærði kl. 21:02 | 214 Orð | Flokkur: Netið



Ummæli (0)


Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu