« Hagfræðitöffarar | Aðalsíða | Lærdómur »

Is it cool to make fun of Bush yet?

október 05, 2001

Við Hildur vorum að koma af Northwestern sýningu með grínistunum David Cross og Lewis Black (sjá mynd).

Lewis Black er mun þekktari en hann kemur vikulega fram í the daily show með John Stewart, sem er lang lang lang lang laaaang besti "late night" þátturinn. Black er þekktur fyrir að vera mjög æstur, að frussa blótsyrðum og skömmum út úr sér. Hann hefur mjög sérstakan stíl og er meiriháttar fyndinn.

Báðir töluðu um árásina 11.sept og gerðu grín að ýmsum hlutum skyldum atburðunum. Þeir voru báðir í New York þann dag. Það hefur verið mikið tabú að tala um árásirnar og allt í kringum þær á gamansaman hátt. Einhver kallaði árásina "The Death of Irony". Báðir gerðu þó grín að atburðunum á þann hátt að fáir myndu sennilega móðgast (nema kannski flugvallarstarfsmenn). Allavegana, þá voru bæði Cross og Black frábærir í kvöld. Snilld!

Einar Örn uppfærði kl. 04:44 | 143 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (0)


Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?