« Monsters og Star Wars | Aðalsíða | Vitlausir Íslendingar Ég á varla »

Yndislegur sunnudagur

nóvember 05, 2001

Dagurinn í gær var alveg einsog bestu sunnudagar eiga að vera. Ég vaknaði klukkan 10 og fór að horfa á Liverpool - Manchester United, þar sem Liverpool yfirspiluðu United algjörlega og unnu glæsilegan sigur 3-1.

Síðan um eftirmiðdaginn horfði ég á mitt fótboltalið, Chicago Bears vinna Cleveland Browns í ótrúlegum leik. Staðan var 21-7 fyrir Cleveland þegar um þrjár mínútur voru eftir. Ég var því búinn að gefast upp og skipti um stöð. Nokkru síðar hringdi hins vegar einn vinur minn í mig og sagði mér að stilla á CBS. Og viti menn, Bears höfðu jafnað leikinn á síðustu sekúndunni. Bears unnu svo á ótrúlegan hátt í framlengingunni.

Um kvöldið var svo sjöundi leikurinn í World Series, úrslitaleiknum í hafnabolta. Mitt lið Cubs, datt út fyrir nokkru, þannig að eina von mín var að liðið, sem ég hata, New York Yankees myndi tapa. Og viti menn, Arizona Diamondbacks unnu leikinn á ótrúlegan hátt. Þeir voru undir 2-1 í síðustu lotunni og Mariano Rivera, sem er sennilega besti "relief" kastari allra tíma, var að kasta, en á ótrúlegan hátt tókst Rivera að klúðra málunum og tveir gamlir Cubs leikmenn, Grace og Gonzales tryggðu Arizona sigurinn.

Svona eiga sunnudagar að vera. Þrír leikir þar sem mín lið vinna.

Einar Örn uppfærði kl. 15:29 | 207 Orð | Flokkur: Íþróttir



Ummæli (0)


Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu