« nóvember 05, 2001 | Main | nóvember 08, 2001 »
Vitlausir Íslendingar Ég á varla
Ég á varla orð yfir þessari hræðslu Íslendinga við Anthrax. Hér í Bandaríkjunum, sem er nota bene EINA landið, þar sem anthrax hefur fundist undanfarið, er nær hætt að fjalla um þessi mál í fréttum.
Einu tilvikin, sem hafa sannast hafa verið árásir á fréttastofur og ríkisbyggingar hér í Bandaríkjunum. Því spyr ég, af hverju í ósköpunum heldur fólk að Ísland sé næsta skotmark???
Til dæmis er núna frétt á forsíðu mbl.is um hjón í HAFNARFIRÐI, sem halda að þau séu með Anthrax. Einnig sá ég að póstmiðstöð Íslandspóst hefði verið lokað í meira en sólarhring vegna ótta við sýkingu. Þetta er ótrúlegt.
Á innlendum fréttum eru, þegar þetta er skrifað, eftirfarandi fyrirsagnir:
- Hjón hljóta fyrirbyggjandi lyfjameðferð gegn miltisbrandi
- Eiturefnasveit kölluð að íbúðablokk í Hafnarfirði
- Engin póstdreifing á morgun hjá Íslandspósti
- Duft sem fannst í bögglapósti til rannsóknar
- Torkennilegt duft í bögglapósti
- Duftbréf barst í hús við Sléttuveg
- 13 starfsmenn Íslandspósts sendir í læknisrannsókn vegna duftsbréfs
- Enginn miltisbrandur í dufti frá Landsbanka Íslands
- Niðurstaða rannsóknar á dufti úr Landsbankanum liggi fyrir í dag
- 10 starfsmenn Landsbankans í lyfjameðferð gegn miltisbrandi
- Engar sérstakar varúðarráðstafanir vegna jólapósts
- Bréf með hvítu dufti flutt á rannsóknarstofu
- Húsi Landsbankans lokað vegna torkennilegs bréfs
Þetta gera þrettán (já 13) fréttir. Sú elsta er frá því klukkan 16, 6.nóv og sú nýjasta kl 21, 7. nóvember. Þannig að á rétt rúmum sólarhring eru þrettán fréttir um miltisbrand á Morgunblaðinu.
Íslendingar eru alltaf að gera grín að Bandaríkjamönnum og hvernig þeir bregðast við hinum ýmsu hlutum. Ég held samt að bæði fjölmiðlar og almenningur hér í Bandaríkjunum hafi tekið á þessum hlutum með mun meiri ró og skynsemi heldur en á Íslandi.
Leit:
Síðustu ummæli
- Kristján Atli: Til hamingju Sigurjón! Þér var hlíft við þessu óþa ...[Skoða]
- Einar Örn: Sigurjón, þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur. ...[Skoða]
- Sigurjón: Æ æ æ æ .... Ef niðurstaðan verður Man Utd vs Liv ...[Skoða]
- Einar Örn: Takk ...[Skoða]
- einsidan: Til hambó með þetta ...[Skoða]
- Gaui: Skál fyrir því, Einar minn! ...[Skoða]
- Hjördís Yo: ó já! Ég elska sko líka Liverpool !! ...[Skoða]
- Gummi: Jamm, var lengi að jafna mig á rangstöðunni. En Re ...[Skoða]
- Fannsa: Ömurlegt þegar dómarinn dæmdi ranglega rangstöðu.. ...[Skoða]
- Snorri: Ég sé EKKI fyrir mér að Árni komist inn á þing til ...[Skoða]
Flokkar
Almennt | Bækur | Dagbók | Ferðalög | Fjölmiðlar | Hagfræði | Íþróttir | Kvikmyndir | Liverpool | Myndablogg | Myndir | Netið | Sjónvarp | Skóli | Stjórnmál | Tónleikar | Tónlist | Topp10 | Tækni | Uppboð | Viðskipti | Vinna |Gamalt:
Topp 10:
Ég nota MT 3.33