« desember 05, 2001 | Main | desember 07, 2001 »

Lengi lifi kreppan og vinstir grænir!!!

desember 06, 2001

Athyglisverð grein á Múrnum um nýlega skoðanakönnun. Þar segir m.a. í lok greinarinnar:

Gott gengi VG er auðvitað líka að þakka foringja sem þjóðin hefur trú á og er helsti valkosturinn við Davíð Oddsson sem þjóðarleiðtogi hér á landi. En mestu ræður auðvitað að kjósendur eru orðnir þreyttir á einstefnu frjálshyggjunnar og VG er eini flokkurinn sem hefur hafið virka baráttu gegn henni. Þeir sem vilja breyta til vita alveg hvað þeir eiga að kjósa.

Og þeim mun fjölga þegar kreppan skellur á.

Með öðrum orðum, fylgi VG mun aukast því meiri, sem kreppan er á Íslandi.

Mikið hlýtur það nú að vera óþægileg staða fyrir Vinstri Græna. Ætli þeir á Múrnum vonist til að kreppan aukist? Ef ástandið er bara nógu slæmt, þá hlýtur fylgi VG að rjúka uppúr öllu.

Ég man einhvern tímann að einhver stjórnmálaskýrandi var spurður hver hann héldi að yrði forseti Bandaríkjanna árið 2004. Hann sagði að þrátt fyrir að honum væri meinilla við George W Bush, þá vonaðist hann til að Bush yrði endurkjörinn, því að það hlyti að þýða að landinu hefði vegnað vel undir stjórn hans.

Ætli stjórnmálamenn, sem tapa kosningum, vilji innst inni að hagkerfinu gangi illa, bara til að þeir geti komið fjórum árum seinna og sagt: "Þið hefðuð átt að kjósa mig."?

214 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál

Dýrt kaffi?

desember 06, 2001

Ágúst hrósar nemendafélaginu í HR fyrir að lækkar verð á kaffi niður í 50 krónur.

Það er augljóst að við Northwestern nemendur lifum ekki við slíkan lúxus. Kaffið í Norris stúdentamiðstöðinni (Seattle's Best) kostar 160 krónur.

Annars legg ég til að fólk hætti að birta niðurstöður úr prófum, sem það var að taka á netinu.

57 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Dagbók

Lærir fólk ekkert í Caltech?

desember 06, 2001

Ég neita að trúa því að fólk Caltech viti ekki hvað Hooke lögmálið sé!!!!!!.

Einn vinur minn í knattspyrnuliðinu komst inní bæði Northwestern og Caltech. Hann valdi Northwestern af því að honum fannst vera svo margir nördar í Caltech. Mér finnst alveg vera nóg af nördum í Northwestern. Nördarnir í Caltech virðast þó ekki vera alltof klárir samkvæmt Árdísi, sem lærir þar.

Ég veit ekki hvað Hooke lögmálið er, þrátt fyrir að ég hafi lært eðlisfræði í tvær vikur í Verzló.

Mér finnst það frekar skrítið að ég skuli vera með stúdentspróf í eðlisfræði.

97 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Skóli

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33