« mars 06, 2002 | Main | mars 08, 2002 »

Skólinn

mars 07, 2002

Þessi vika er síðasta vikan á þessari önn. Í næstu viku er lestrarvika og svo próf. Ég þarf að fara að fylla út CTEC upplýsingar, þar sem ég gef prófessorunum einkunn. Allavegana, tímarnir, sem ég er í núna eru:

Hagfræði - International Finance. Einsog nafnið gefur til kynna, alþjóðleg fjármál. Voða gaman, færa til fullt af línuritum og fjör. Kennt af hinum merka Lawrence Christiano.

Hagfræði - Advanced Econometrics. Hagtölfræðitími, þar sem notast er við línulega algebru. Mikil tölvuvinna, aðallega með hjálp Stata. Kennt af Joseph Altonji

Stjórnmálafræði - Latin American Politics. Fjallað um stjórnmál í Suður-Ameríku frá seinni heimsstyrjöld til dagsins í dag. Kennt af Edward Gibson

Hagfræði - Honor's Seminar. Þetta er í raun ekki tími, heldur skrifum við í þessum tíma ritgerð. Ég er búinn að velja mér ritgerðarefni og er ég á fullu að safna saman gögnum fyrir ritgerðina.

Jæja, þetta er spennandi efni, ekki satt?

155 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Skóli

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33