« mars 17, 2002 | Main | mars 19, 2002 »

Eitt próf eftir

mars 18, 2002

Prófið í morgun gekk sæmilega og nú er bara eitt próf eftir, klukkan 12 á morgun.

Ég ætla því að eyða deginum í að stúdera hagmælingar og línulega algebru.

Ég lofa því að skrif mín munu verða skemmtilegri þegar ég er búinn.

Það er hægt að keyra "regression" fyrir skemmtilegheit.

Skemmtilegheit á síðunni hans Einars = 10 - 3 X fjöldi prófa eftir - 2 X klukkustundir, sem ég er búinn að læra í dag - 2 X klukkustundir síðan ég vaknaði + 2 X fjöldi kaffibolla.

87 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Skóli

Prófstress

mars 18, 2002

Á morgun er ég að fara í próf í alþjóðafjármálum og svo á þriðjudag er það hagmælingatíminn minn.

Ég er orðinn dálítið stressaður, sem ég veit í raun ekki hvort er gott eða vont. Stundum finnst mér ég kunna allt og þá verð ég ennþá stressaðri en vanalega. Ég er þá hræddur um að ég sé að gleyma einhverju.

Það er samt ekki gott að vera alltof rólegur þegar maður fer í próf. Það er gott að vera dálítið ofvirkur rétt fyrir próf.

Dagurinn í dag er búinn að vera leiðinlegur. Hápunktarnir voru þegar ég bakaði bandarískar pönnukökur (blandaði saman tilbúnu deigi og vatni og hellti á pönnu) og síðan horfði ég á The Simpsons. Jei.

Gærdagurinn var ekki mikið meira spennandi. Ég ákvað að fara í aukatíma í hagfræði eftir að ég horfði á Liverpool vinna Middlesboro. Ég fór aðallega í tímann til að forðast það að horfa á háskólakörfubolta allan daginn. Í gærkvöldi kíktum við Hildur svo heim til Ryans, þar sem við vorum eitthvað að spjalla fram á nótt.

Ég vildi að ég gæti bara spólað áfram svo sem tvo daga.

184 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Skóli

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33