« Ferð til Washington D.C. | Aðalsíða | Spring Break Panama City 2002 »

Spring Break

mars 21, 2002

Þegar ég vaknaði í morgun var kominn snjór fyrir utan. Ég þurfti því miður að skila spólu á Blockbuster og því þurfti ég að hlaupa úti í 10 stiga frosti.

En mér er bara alveg sama af því að við erum að fara til Florida á morgun. Jibbíííí.

Við Hildur erum að fara með Dan og Victoriu, vinum okkar. Við ætlum að leggja af stað snemma á morgun og keyra allan daginn niður til Panama City Beach, en það er að ég held 19 tíma keyrsla. Við gistum þar á einhverju ódýru móteli og ætlum að vera 7 daga.

Það verður vonandi fjör. Þetta er lang vinsælasti spring break staðurinn og ég held að um hálf milljón háskólanemar séu þarna í marsmánuði. Hildur stefnir á að komast í "Girls Gone Wild, Spring break 2002"

Ég veit ekki hvort ég skrifi eitthvað frá Florida. Ég efast stórlega um það.

Einar Örn uppfærði kl. 18:29 | 148 Orð | Flokkur: Ferðalög



Ummæli (0)


Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu