« Nýtt RSS | Aðalsíða | PR#1 mættur aftur á netið »

Flutningar

september 03, 2002

Mikið er búið að ganga á í lífi mínu í dag. Kannski einna merkilegast er að íbúðin mín á Hagamelnum er nú loksins laus og því er ég að fara að flytja á morgun.

Því er ég búinn að vera að pakka niður dótinu mínu hérna í Garðabænum. Reyndar var ég búinn að pakka mest öllu dótinu um jólin og því er ekki mikið eftir. Með flutningunum á morgun verð ég því búinn að flytja þrisvar á síðustu tveim mánuðum. Það verður eflaust góð tilfinning að vera loksins kominn á varanlegan stað, svo ég geti loksins tekið uppúr öllum kössunum mínum.

Einar Örn uppfærði kl. 22:07 | 101 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (1)


INNFLUTNINGSPARTÝ! :-)

Kristján sendi inn - 04.09.02 15:52 - (Ummæli #1)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu