« Vinur minn í ísraelska hernum | Aðalsíða | Hvað er ég eiginlega gamall? »

Serrano dagar 2-4

4. nóvember, 2002

Þá eru hlutirnir á Serrano farnir að ganga mun betur. Byrjunarvesen er að mestu úr sögunni, þó að við eigum enn eftir að þjálfa eitthvað af hlutastarfsfólkinu. En allavegana, þá gengu gærdagurinn og dagurinn í dag mjög vel.

Traffíkin í kringum hádegið í dag var svakaleg og á tíma var biðröðin komin langt út fyrir staðinn. Á þeim tímapunkti ákváðu svo allir sölumenn landsins að koma í heimsókn til okkar á meðan ég var að rembast við að afgreiða. Til að toppa það, sprakk einhver leiðsla og Pepsi flæddi um öll gólf. Já, by the way, Pepsi Max verður vonandi komið á morgun eða miðvikudag, þannig að Ágúst gleðst vonandi þá.

Það er búið að vera ótrúlega mikið að gera. Nánast stanslaus traffík, þrátt fyrir að við höfum ekkert auglýst og að það er ekki einu sinni búið að tengja ljósaskiltið okkar. Það, sem gleður mig þó mest er að fólk virðist vera ótrúlega jákvætt varðandi matinn okkar. Ég var í afgreiðslunni í allan dag og þekkti ég að minnsta kosti 10-15 manns, sem voru að koma í annað skipti.

Annars er það fyndið að ég sá Ágúst Flygenring, stórbloggara, í fyrst skipti í dag. Allar myndirnar á heimasíðunni hans eru greinilega frekar gamlar (eða allavegan, þær sem ég hef séð) og því þekkti ég hann ekki í fyrstu. Hann var allavegana mjög ánægður og skrifar um það á síðunni sinni.

Einnig komu Kristján og Stella, en ég hef ekki hugmynd um hvernig þau líta út (þrátt fyrir að ég lesi síðuna þeirra). Stella skrifar líka vel um staðinn.

Einar Örn uppfærði kl. 21:23 | 261 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (6)


VEI! :-)

Ágúst sendi inn - 04.11.02 21:30 - (Ummæli #1)

bráðabirgðaeinkunn á gummijoh.net

Hef bara ekki haft tíma til að fara aftur.

Gummi Jóh sendi inn - 04.11.02 22:38 - (Ummæli #2)

Jamm, þú varst svo fljótur að skrifa um staðinn, Gummi, að ég gleymdi þinni grein. :-)

Einar Örn sendi inn - 04.11.02 23:13 - (Ummæli #3)

Held ad thad toppi ekkert felaga minn sem les siduna en hafdi ekki lesid hana nylega. Hann sa thig a bakvid kassann og daudvorkenndi hagfraedingnum fra Northwestern sem fekk ekki betri vinnu en a skyndibitastad i Kringlunni!

Oli Bjarki sendi inn - 05.11.02 21:27 - (Ummæli #4)

Einsog Davíð segir, þessir háskólamenn eru einskis nýtir, nema þá kannski til að búa til burritos :-)

Ágúst sendi inn - 05.11.02 23:20 - (Ummæli #5)

:-) Kíktum á Serrano núna rétt áðan.

Fínn matur, f. utan eitt smáatriði. Það voru hörð grjón inn á milli í hrísgrjónunum.

En allt í allt, helv. hressandi að geta fengið sér e-ð annað en djúpsteikan óbjóð löðrandi í fitu og ógeði…

… svo skemmir ekki hvað þetta var gott :-)

egill sendi inn - 06.11.02 15:41 - (Ummæli #6)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu