« Íslensk tónlist | Aðalsíða | Sokkabuxur »
Osama og kröfur hans
The Guardian birtir í dag bréf, sem talið er vera samið af Osama Bin Laden, þótt engar sannanir séu færðar fyrir því. Bréfið er samið til Bandarísks almennings. Í því er margt athyglisvert. Ég tek það þó fram að ég geri ráð fyrir að Bin Laden hafi skrifað bréfað. Ef svo reynist ekki, þá biðst ég náttúrulega afsökunar á ummælum mínum.
Bin Laden skýrir í bréfinu út sína hugmyndafræði og hvers vegna hann heyjir stríð gegn Bandaríkjamönnum. Í bréfinu telur Bin Laden upp þau skipti, sem Bandaríkjamenn hafa ráðist á ríki múslima og telur hann því það réttlæta hryðjuverk múslima, því að í kóraninum segir að múslimar hafi rétt til að ráðast á þá, sem á þá ráðast.
Það, sem vekur kannski mesta athygli er að ef Bin Laden samdi bréfið, þá er augljóst að George Bush hefur haft rétt fyrir sér með því að segja að þessir hryðjuverkamenn séu í raun fyrst og fremst á móti frelsi okkar og lífstíl. Þetta sést meðal annars á því að fyrsta krafa Bin Laden er að Bandaríkjamenn taki upp lög Islam. Bin Laden gagnrýnir einnig aðskilnað ríkis og kirkju.
Hann segir:
og
Hagfræðingurinn ég tók náttúrulega eftir kostulegasta kommentinu frá Bin Laden (nota bene, þetta á að vera skrifað árið 2002)
Sem sagt þá telur Bin Laden að það að lána með vöxtum sé gegn vilja Guðs. Þannig að til að þóknast Osama þurfum við Vesturlandabúar að gjörbylta (eyðileggja) allt okkar efnahagskerfi.
Auðvitað er bréfið einnig fullt af frekara gyðingahatri.
og
Einnig er setur Bin Laden útá það hversu frjálsir Vesturlandabúar eru gagnvart kynlífi og réttindum kvenna og samkynheigðra. Samkvæmt Osama þá fundu Bandaríkjamenn líka upp AIDS.
og
Reyndar fór ég eitthvað að efast um að þetta væri Bin Laden þegar hann fór allt í einu að tala um umhverfismál. Þessi klausa gæti allt eins hafa verið skrifuð af evrópskum græningjum:
Auk þessarar óraunhæfu kröfu um að við breytum öllum lífstíl okkar, þá fer Bin Laden fram á fjölmarga hluti, sem margir Vesturlandabúar eru sammála honum um. Einsog að Bandaríkjamenn hætti að styðja spillt stjórnvöld í múslimaheiminum. Bin Laden stenst þó ekki mátið og smellir inn einni hótun í enda þeirrar málsgreinar:
Það er augljóst að ef að Bin Laden skrifaði þetta bréf, þá er lausn margra friðarsinna á þessu vandamáli ekki fullnægjandi. Það virðist ekki vera nóg til að gleðja Bin Laden og hans líka að Bandaríkjamenn dragi herlið sitt frá Arabalöndum og hætti stuðningi við Ísrael. Nei, Bin Laden og félagar verða ekki sáttir fyrr en við höfum gjörbyllt öllu, sem við stöndum fyrir.
Ummæli (4)
Nei, þetta er ekki rétt hjá þér. Osama er ekki að gagnrýna þá, sem lána með 3.5% vöxtum versus þeir, sem lána með t.d. 6% vöxtum. Hann segir að það að rukka vexti (sama hve háir) sé synd.
Og þetta með náttúruna er náttúrulega bara útúrsnúningur. Bin Laden er að segja að við eigum að taka upp lög islam og hafna samkynhneigðum, og svo framvegis. Þetta með umhverfisvernd er ekki ofarlega á listanum hjá Bin Laden.
Ég held að allir sé að misskilja Usama, þetta er tekið úr samhengi hann meinti, lána með miklum vöxtum í lítinn tíma og vera laminn í lokinn væri ekki gott. En það var svo löng setning. Annars er Disney land myndbandið með honum æði þar sem hann krefst þess að McDonalds fari frá Íslömskum ríkjum og hætt verði að senda Mikka Mús út á gervihnöttum.
Ég held annars að þetta geti nú vart verið frá karlinum komið, líklega er þetta ein af þeim gabbfréttum sem alltaf skjóta upp kollinum öðru hverju í jafnvel virðulegustu fjölmiðlum. Það svona sem helst segir mér að svo geti verið er Kyoto klausan, þó svo að OBL sé nú líklega ekki maður alvitlaus þá er ég ekki sannfærður um það að hann láti máttlausan Kyoto sáttmála mikið á sig fá.
Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu
“lána með vöxtum sé gegn vilja Guðs”
ATH.. munur á vöxtum og okurvöxtum (sjá Ísland)
“Auk þessarar óraunhæfu kröfu um að við breytum öllum lífstíl okkar”
Já döö.. ég meina við hendum því rusli og eyðileggjum þá náttúru sem við viljum… meina hvað er eðlilegra en það?