« Sokkabuxur | Aðalsíða | Bestu háskólar í Bandaríkjunum 2003 »
Gullgrafarar
Fox sjónvarpsstöðin, sem hefur gert þætti einsog "Whoe wants to marry a multi-millionaire" er að hefja sýningar á nýjum þætti, Joe Millionaire í Bandaríkjunum.
Þátturinn byggist upp á svipaðan hátt og "The Bachelor", það er 20 konur berjast um einn mann, sem á 50 milljónir dollara. Eða það halda konurnar. Málið er að í raun er maðurinn bara smiður. Í þættinum er það látið líta út sem hann sé milljónamæringur en í lokaþættinum mun konunni, sem hann velur, vera tjáð að hann sé bara smiður en ekki multi-milljónamæringur. Þannig að þá kemur í ljós hvort allar ástarjátningarnar (sem munu væntanlega koma frá konunum) breytast eitthvað við þær fréttir. Góð hugmynd? Ég veit ekki.
Ummæli (4)
Þetta er algjör snilld. En það er spurning um að taka þessa pælingu lengra - ég vil gera Survivor þar sem grínið verður “enginn peningur í endann - þetta var bara frí megrun”, Temptation Island þar sem allir verða njúkaðir og síðast en ekki síst Spaugstofu sem verður fyndin.
Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu
Gæti verið afskaplega áhugavert