« Hvað er að Liverpool? | Aðalsíða | Hvað er að Liverpool? »

Báknið burt!!!! ...eða kannski ekki

15. desember, 2002

Helgi Hjörvar er snillingur.

Ég var að horfa á Silfur Egils áðan og þar var Helgi í umræðum með Sigurði Kára og einhverjum Framsóknarmanni. Svei mér þá ef Sigurður Kári er ekki að setja Íslandsmet í flokkshollustu. Á tæpum mánuði eftir þetta prófkjör er hann búinn að breytast úr frjálshyggjumanni í versta íhaldsmann, sem var í þættinum að verja ríkisábyrgð, ríkisútvarpið og ríkisframkvæmdir. Ég held að það hafi allavegana tekið menn einsog Friðrik Sophusson nokkra mánuði að breytast í íhaldsmenn.

Helgi Hjörvar baunaði skemmtilega á Sigurð Kára varðandi þessa breytingu og það eina, sem Sigurður Kári gat svarað var að kommenta að Helgi Hjörvar hafi eitt sinn verið sósíalsti. Alger snilld. Hvet alla til að horfa á þetta í endursýningu í kvöld.

Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég á erfitt með að hugsa mér að kjósa sjálfstæðisflokkinn. Það virðist vera sem menn leggi hugsjónir að baki um leið og þeir eru komnir í framboð. Það er algjörlega óþolandi og ég held að Sigurður Kári ætti aðeins að hugsa sinn gang. Ég tel að hann hafi ekki verið valinn í prófkjörinu til að verða bara einhver klappstýra fyrir íhaldsflokkinn.

Einar Örn uppfærði kl. 15:55 | 191 Orð | Flokkur: Stjórnmál



Ummæli (2)


Jep, Sigurður Kári og Guðlaugur eru báðir fullkomlega karakterlausir. Meira að segja þeir ofsatrúuðustu sjálfstæðismenn hljóta að sjá í gegnum pípið í þeim.

Augljóst að þeir eru búnir að finna sér framtíðarvinnu enda munu þeir lítið annað gera í þeirri vinnu en mæta og segja já og amen.

Þetta er ein mjög margra ástæðna fyrir því að ég gæti aldrei orðið þingmaður. Eftir 4 ár yrði ég látinn fara því ég mundi rífa kjaft allan tímann. Lýsa í smáatriðum vikulegum veisluhöldum allsherjarnefndar, dýrindis hádegismatnum frá Jómfrúnni (minna má það nú ekki vera) sem fylgir ófáum fundum. Mætti segja mér að þeir Guðlaugur og Sigurður Kári eigi eftir að bæta duglega utan á sig á næstunni…

Ragnar sendi inn - 15.12.02 17:36 - (Ummæli #1)

Nuna kys madur ekki lengur Sjalfstædisflokkinn vegna skodana, heldur til ad minnka likurnar a vinstristjorn! Sem sagt utilokunaradferdin og hrædsla vid ad Steingrimur J komist til valda :-)

Geir sendi inn - 15.12.02 19:00 - (Ummæli #2)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu