« ELDUR Á MCDONALDS!!! | Aðalsíða | Google myndir »

Frægasti Einar í heimi - annar hluti

janúar 19, 2003

Einar: Í október setti ég mér það markmið að verða frægasti Einar í heimi, allavegana samkvæmt leitarvélum. Takmarkinu er ekki enn náð en þetta er þó allt að batna. (Einar)

Í október var ég númer 11 á Google en núna er ég númer 6. Reyndar er Northwestern síðan mín númer 2, en hún er náttúrulega niðri enda ég ekki lengur í þeim ágæta skóla. (Einar)

Á leit.is er ég kominn uppí 4. sæti þegar slegið er inn Einar, en ég var í sæti númer 41 í október. Jibbííí. Listasafn Einars Jónssonar og EJS eru fyrir ofan mig á leit.is en á Google er þessi blessaði Norski skíðakappi í efsta sæti. Ég er þó kominn upp fyrir Einar Diaz, baseball kappa.

Ég tók hins vegar eftir því (eftir að Katrín hafði bent á svipað dæmi) að Google myndaleitavélin finnur enga mynd af mér. Ég fletti einhverjar 15 síður en fann enga mynd af mér. Þessi gaur var samt þarna, ég fann eina mynd af pabba og (af einhverjum ástæðum var Svartifoss. Svartifoss!!! en engin mynd af mér. Ég ætla því að breyta svipuðu ráði og Katrín og biðja alla um að smella hér -> Einar. Þetta er ég, þreyttur, þunnur og ógreiddur á sunnudagskvöldi.

Einar Örn uppfærði kl. 21:59 | 211 Orð | Flokkur: Netið



Ummæli (5)


veiii ég ýtti hjá þér:D þú verður þá að ýta hjá mér!!!!:D

katrín sendi inn - 19.01.03 22:30 - (Ummæli #1)

Já stefnir bara í heimsfrægð :-)

Hjördís sendi inn - 20.01.03 00:34 - (Ummæli #2)
Ágúst sendi inn - 20.01.03 13:24 - (Ummæli #3)

Hverju ætlar þú að ná fram með því að láta fólk smella á linkinn?

Ég gæti skilið þetta ef þú værir að biðja fólk um að vísa á myndina frá sínum síðum en fatta ekki hvernig það á að færa myndina ofar á leitarsíðum að biðja alla um að skoða hana.

Matti Á. sendi inn - 21.01.03 12:47 - (Ummæli #4)

Jammmm, þetta var smá misskilningur hjá mér. Sindri bendir á mistökin á katrín.is. Hann segir: “Ég held að trikkið sé að setja img tag nálægt textanum “katrín” og setja linka í skránna sem inniheldur img tagið sem heita katrín osfrv…
Google virðist ekkert skipta sér af mydnum sem er linkað beint í, heldur bara myndum sem eru inná vefsíðum í img tögum.”

Þannig að ég bætti orðinu Einar oft inní færsluna. Einar Einar Einar. Sjáum hvort það virkar. Egó? Nei! :-)

Einar Örn sendi inn - 21.01.03 18:16 - (Ummæli #5)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu