« janúar 19, 2003 | Main | janúar 22, 2003 »

Google myndir

janúar 21, 2003

Já, ég ætla að halda áfram á hégómatrippinu mínu. Sindri bendir á hvernig eigi að fá Google til að finna réttu myndina af sér. Þannig að ég ætla að leika sama leikinn. Smellið hér: Einar

Það er náttúrulega hægt að leika sér áfram með þetta. Ég gæti til dæmis búið til þessa síðu: Hugo Chavez og látið alla halda að Hugo Chavez sé alveg ótrúlega líkur Patton, hundi eins vinar míns. Ég hef samt ekki hugmynd um hvort þetta virki.

Ég gæti líka vegna leikið mér aðeins að leit.is og búið til alls konar skemmtilegar færslur. Ég gæti til dæmis búið til færslu, sem héti: "Sætir strákar", þannig að ef stelpur væru að leita að "sætum strákum" á leit.is, þá lentu þær beint inni á minni síðu. Vúhú! Ég er svo sniðugur!

Æji, þetta er komið nóg af þessari leitarvélavitleysu í bili. Jens PR er að safna saman lista yfir Movabletype notendur á Íslandi. Spurning hvort einhver nenni að þýða MT pakkann yfir á íslensku. Ég ætlaði einu sinni að gera það, en ég nenni því varla lengur. Þetta ætti þó ekki að vera mikið mál. Sjá hér.

190 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Netið

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33