« Honda auglýsing | Aðalsíða | Svipaðar síður »

Bloggað í 3 ár!

apríl 22, 2003

Þótt ótrúlegt megi virðast þá er þessi bloggsíða mín nú þriggja ára gömul. Fyrsta færslan var skrifuð 22. apríl 2000. Þá var ég á öðru ári í hagfræði útí Chicago og mig langaði að prófa að skrifa vefleiðara einsog Björgvin Ingi og Geir Freyr höfðu verið að gera í nokkrar vikur.

Ég hafði haldið úti fremur dapri heimasíðu í nokkurn tíma en mér fannst hún ekki ýkja áhugaverð, þar sem hún var nánast aldrei uppfærð. Því fannst mér vefleiðaraskrif vera sniðug hugmynd.

Ég hef allavegana enst í 3 ár og eftir mig liggja einhverjar 800 færslur, allt frá stuttum færslum um bíóferðir og djamm í upphafi til lengri pistla um pólitík núna uppá síðkastið. Síðan hefur í gegnum tíðina breyst úr því að vera dagbók á meðan ég var erlendis í námi, til þess að fjalla meira um pólitík og íþróttir og minna um mitt einkalíf.

Ég ætla nú ekkert að monta mig en það eru nú ekki margir á Íslandi, sem hafa enst jafn lengi og ég án þess að stoppa. Oft hafa uppfærslurnar dottið niður en alltaf hefur eitthvað komið til, sem hefur endurnýjað áhuga minn á þessari síðu. Ég vonast til þess að mér takist að halda uppi áhuga mínum og lesenda áfram.

Einar Örn uppfærði kl. 12:07 | 207 Orð | Flokkur: Netið



Ummæli (6)


Til hamingju með þennan árangur. Það er rétt hjá þér, það hafa ekki margir nent að gera þetta í 3 ár :-)

Sigurjón sendi inn - 22.04.03 13:57 - (Ummæli #1)

Eru ekki Einar Örn og Gummi Jóh kristaltærir aldursforsetar þegar kemur að samfelldum skrifum?

Geir sendi inn - 22.04.03 14:37 - (Ummæli #2)

já, tíminn líður.. til hamingju með áfangann! ég fagnaði 3. ára afmælinum mínu í bloggheiminum einmitt líka um daginn. við erum engin unglömb lengur. :-)

Dagný sendi inn - 22.04.03 19:32 - (Ummæli #3)

Geir: Án þess að vilja fara út í einhverja typpamælingakeppni, þá hef ég bloggað - án þess að hætta - síðan 4. maí 2000 :-)

Ágúst sendi inn - 22.04.03 22:48 - (Ummæli #4)

Nokkuð fyndið að lesa færslu nr. 2. Elian who? Einhvern veginn finnst manni mörg mörg ár síðan Elian málið kom upp. Svona er tíminn fljótur að líða :-)

Ágúst sendi inn - 22.04.03 22:54 - (Ummæli #5)

Hvernig get ég gleymt “Floggermann”! :-) Hvenær byrjaði Gummi? Hvenær byrjaði Bjarni bre? Út með typpin takk! :-)

Geir sendi inn - 23.04.03 09:39 - (Ummæli #6)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu