« júní 13, 2003 | Main | júní 24, 2003 »

Maus, molar

júní 21, 2003
  • Nýja Maus platan er hrein snilld. Ég get hreinlega ekki skilið af hverju allir Íslendingar eru ekki sammála mér. Öll lögin eru grípandi og ég er ekki búinn að snerta Metallica eða Radiohead diskana mína síðan ég fékk Maus. Hinar tvær uppáhalds íslensku hljómsveitirnar mínar, Quarashi og SigurRós eru báðar búnar að meika það í útlöndum, þannig að mér finnst að Maus eigi að verða næstir. Þeir eiga það skilið.
  • Ég var að koma frá Noregi, var í Osló í nokkra daga. Komst að því að Norðmenn geta ekki sagt "ú". Einsog til dæmis "Just Dú It". Það verður "Just Du it", sem hljómar ekki eins vel. Heyrði samt norskt rapp, sem var bara helvíti gott.
  • Ég er kominn með nýjan síma, sem ég er alveg yfirmig ástfanginn af. Gamla símanum var stolið af einhverjum fábjána á Hverfisbarnum. Refsingin fyrir slík brot ætti að vera hörð, til dæmis að banna viðkomandi að nota GSM síma það sem eftir er ævinnar. Ég er viss um að enginn Íslendingur myndi þola slíka refsingu!
  • The Office eru snilldar þættir. Ég missti af þeim í Sjónvarpinu en hef séð þá tvisvar í Icelandair vélum undanfarnar vikur. Ég var svo hrifinn að ég ákvað að kaupa mér þættina á DVD. By the way, þegar ég var að leita á Amazon, þá kom þessi diskur upp þegar eg leitaði að The Office. Ég var að spá í að skella honum í pakkann en sá svo að hann fékk lélega dóma.:-)
  • Og ef Gerard Houllier er ennþá að lesa þessa síðu: Kauptu Damien Duff!!! (Og Cisse líka). Þú mátt selja Smicer, Cheyrou, Heskey (í gvöðanna bænum) og Carragher.
  • Og þetta er náttúrulega snilld.
279 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Netið

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33