« Kóka Kóla | Aðalsíða | Hrímaður Julio »

Kertafleyting

ágúst 07, 2003

Við PR fórum í gær á Kertafleytinguna á tjörninni til að minnast fórnarlamba stríða.

Ég tók nokkrar myndir, sem fylgja hér með.

Eitt fór í taugarnar á mér við atburðinn. Það var sú staðreynd að enn einu sinni eru Bandaríkjamenn litaðir sem einu illvirkjar í heiminum. Aðalræða þessar friðaratburðar beindist eingöngu gegn Bandaríkjunum og Davíð Oddsyni.

Er ekki hægt að halda ópólitíska friðarsamkomu?

Einar Örn uppfærði kl. 19:19 | 63 Orð | Flokkur: Myndir



Ummæli (5)


Það er ekki neitt sérstaklega langsótt að gagnrýna Bandaríkjamenn á athöfn til minningar um fyrsta og eina skiptið sem kjarnorkusprengjum hefur verið beitt í átökum.

Ef núverandi stefna Bandaríkjanna verður ofan á er hætt við að það verði ekki síðasta skiptið: http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/3126141.stm

KG

Kristbjörn Gunnarsson sendi inn - 07.08.03 20:45 - (Ummæli #1)

Hvernig fór Ameríka að því að breytast á hálfri öld úr því að vera frelsiselskandi, vinsæl, dáð og dýrkuð af restinni af heiminum eftir að hafa “frelsað” Evrópu frá Hitlersógninni og illa keisaraveldinu í austri yfir í að vera tjahh, mér liggur við að segja hötuð af restinni af heiminum?

Þegar vald og auður kemst á hendur fárra einstaklinga fer illa því þeir geta með hvorugt vel farið.

Ragnar sendi inn - 08.08.03 10:46 - (Ummæli #2)

Afhverju setur þú frelsað innan gæsalappa?

Er það eitthvað vafamál?

Jensi sendi inn - 08.08.03 12:05 - (Ummæli #3)

Hmm, ágæt ábending en það væri ónákvæm alhæfing - sbr. að Ameríka frelsaði t.a.m. Evrópu ekki frá Japan…

Ragnar sendi inn - 08.08.03 14:02 - (Ummæli #4)

Hættu þessari vitleysu. Bandaríkin frelsuðu Evrópu. Sama hversu vondir þér finnst þeir vera í dag, þá skulum við ekki gera lítið úr afrekum þeirra í Evrópu í Seinni Heimsstyrjöld.

Hvernig í ósköpunum geturðu búið í Bandaríkjunum, víst að fyrirlitning þín á landinu er svona augljós?

Einar Örn sendi inn - 08.08.03 16:35 - (Ummæli #5)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu