« Kertafleyting | Aðalsíða | Fyrsti kossinn... »

Hrímaður Julio

ágúst 10, 2003

Aðalfyrirsögnin í fréttablaðinu í gær er án efa fyndnasta fyrirsögn ársins:

Halldór á öðru máli en Davíð Oddson !!

Ef ég væri ritstjóri á Fréttablaðinu þá hefði ég reynt að nota enn stærra letur fyrir slík stórtíðindi.

Fór í gærkvöldi á Kofa Tómasar Frænda af því að vinir mínir nenntu ekki að djamma. Sá staður er hins vegar í mikilli tilvistarkreppu. Er kaffihús, sem heldur að með plötusnúði geti það breytt sér í hipp og kúl bar. Það gerðist allavegana ekki í gærkvöldi. Eina sem gerðist var að við gáfumst upp á að öskra hvert á annað.

Annars horfði ég í gærkvöldi á þátt í Queer As Folk í fyrsta skipti í meira en mánuð. Það var merkisstund í mínu lífi. Verður maður jú ekki að halda áfram að lifa, þrátt fyrir allt? Ha?

Einar Örn uppfærði kl. 13:33 | 134 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (0)


Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu