« Enski boltinn - fyrsta færsla | Aðalsíða | Dorito Burrito »
Google nördaskapur
ágúst 14, 2003
Fyrir alla, sem hafa áhuga á stærðfræði (og HVER hefur ekki áhuga á stærðfræði??) þá er Google reiknivélin nokkuð skemmtilegt tæki.
Kottke er að leika sér að vélinni og einnig Andrew Baio á Waxy.
Reiknivélin er sniðug að því leyti að maður getur skrifað formúlur á einfaldan hátt. Viltu vita hvað 57 kílómetrar eru margar mílur. Þá skrifar maður bara 57 kilometers in miles. Gæti ekki verið einfaldara. Hversu margar sekúndur í einni öld = 1 century = 3.1556926 × 1009. Og svo framvegis...
Já, þetta er sko aldeilis skemmtilegt tæki. Finnst ykkur það ekki?
Ummæli (0)
Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu