« Afmæli og þynnka | Aðalsíða | Le Tallec og Ronaldo »

Rússlandsferð

ágúst 18, 2003

Á morgun er ég að fara í frí. Í fyrsta skipti í mjög langan tíma, sem ég tek mér frí frá vinnu eða skóla. Ég ætla að byrja að fara til Frakklands, þar sem að Jens PR vinur minn ætlar að giftast Jónu vinkonu minni. Þau ætla að gifta sig í einhverjum gömlum kastala á fimmtudaginn.

Á föstudaginn ætla ég svo að fljúga til Moskvu, þar sem ég ætla að eyða viku. Þaðan ætla ég að taka lest upp til St. Pétursborgar, þar sem ég ætla að eyða annarri viku.

Ég er að fara einn til Rússlands og verður það ábyggilega dálítið skrítið. Það hefur lengi verið draumur minn að fara til Rússlands og ákvað ég bara að skella mér sjálfur. Ég veit að mér á aldrei eftir að takast að sannfæra vini mína eða stelpur, sem ég á eftir að kynnast, um að fara til Rússlands, þannig að ég fer bara einn.

Þetta er líka gott tækifæri til að jafna mig eftir allt vinnuálagið og vesen í einkalífinu undanfarnar vikur og mánuði.

Það verður fínt að slökkva á GSM símanum og njóta þess í stað rússneskar menningar í rólegheitum. Djöfull hlakkar mig til.

Einar Örn uppfærði kl. 18:51 | 194 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (4)


kemur við hjá mér í danmörku á bakaleiðinni :-) en góða ferð og ekki gleyma mér á meðan!!

katrín sendi inn - 18.08.03 23:46 - (Ummæli #1)

held það sé rangt að það væri erfitt að sannfæra flesta þína vini til að fara…skemmtu þér vel og hafðu það gott Emil :-)

Emil sendi inn - 20.08.03 16:22 - (Ummæli #2)

Sammala Emil.

Vona ad thu hafir thad rosa gott og skemmtir ther vel uti. :-)

HB sendi inn - 21.08.03 18:34 - (Ummæli #3)

það er reyndar rugl hjá þér að stelpur fíli ekki að fara til rússlands, fór sjálf til St. Pétursborgar í fyrra haust og það var bara snilld!

Ella sendi inn - 22.11.03 14:38 - (Ummæli #4)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu