« Mánudagsþreyta | Aðalsíða | Leiðrétting »

Fyrirlestur í Háskólanum

nóvember 12, 2003

Á morgun mun ég halda fyrirlestur í Háskólanum (HÍ). Mun hann fjalla um stofnun eigin fyrirtækja. Þar ætla ég að miðla smá af minni reynslu varðandi stofnun og rekstur Serrano.

Ég svo sem ekki von á mörgum áhorfendum, þar sem 30 hræður mættu á fyrirlestur forsætisráðherra Namibíu.

Ég vona þó að einhverjir mæti. Ég ætla allavegana að reyna að hafa þetta áhugavert :-)

Ég ætla aðeins að fjalla um stofnun Serrano og svo þau vandamál, sem við höfum rekist á. Hvet alla til að mæta. Fyrirlesturinn verður í Lögbergi í stofu L-103 á morgun, fimmtudag frá 12:15-12:45.

Einar Örn uppfærði kl. 17:09 | 98 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (2)


Hurðu Einar, er einhver séns að þú getir komið þessari reynslu á blað (skjal/síðu) fyrir okkur heimskingjana. Ég var sjálfur á kafi í vinnu þegar þessi fyrirlestur var, annars hefði ég komið. Þetta væri afar áhugaverður lestur… Bestu kveðjur, Svavar

Hr. Svavar sendi inn - 19.11.03 19:20 - (Ummæli #1)

Jamm, kannski að ég geri það við tækifæri.

Einar Örn sendi inn - 19.11.03 22:12 - (Ummæli #2)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu