« Hvernig má bjarga Liverpool | Aðalsíða | Spánn »

Lovesong

mars 14, 2004

Talandi um léleg cover lög. Á PoppTV sá ég 311 vera að spila eitt af mínum uppáhaldslögum, Lovesong. Þetta lag er upphaflega með The Cure og er á einni af mínum uppáhaldsplötum, Disintigration.

Allavegana, hérna getiði nálgast upprunalegu The Cure útgáfuna: Love Song (mp3). Þessi útgáfa er svo miklu betri en 311 cover-útgáfan að það er ekki fyndið.

Þetta er fullkomið lag til að hlusta á sunnudagskvöldi. Reyndar er öll Disintegration fullkomin hlustun á svona kvöldum.

Einar Örn uppfærði kl. 20:42 | 77 Orð | Flokkur: Tónlist



Ummæli (3)


Ekkert af þessu jafnast þó á við Scooter-útgáfuna af The Logical Song. :-)

delmo sendi inn - 14.03.04 23:59 - (Ummæli #1)

Ég er nú ekki mikill Supertramp aðdáandi, þannig að það fékk ekki alveg jafn mikið á mig :-)

Einar Örn sendi inn - 15.03.04 23:31 - (Ummæli #2)

Ég er hreint ekki sammála þér, verð að segja það. 311 er grúví hljómsveit og fara alveg ágætlega með þetta lag, þótt það sé talsvert betra í upprunalegu útgáfunni. Ég hef séð 311 live og þetta er nett band… þeir eiga sum af betri rokk/popplögum síðustu ára, að mínu mati. :-)

Kristján sendi inn - 22.03.04 16:07 - (Ummæli #3)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu