« Börn og auglýsingar | Aðalsíða | Erekki allir í stuði? »
The War President
apríl 19, 2004
Jens benti mér á þetta. Nokkuð áhrifaríkt: The War President
Líka góður punktur í þessari grein hjá Moore um að hætta með þetta Newspeak málfar. Til dæmis það að “verktakarnir” sem voru drepnir í Fallujah voru auðvitað engir verktakar, heldur málaliðar.
Ég byrjaði að lesa Da Vinci Code í gærkvöld og sofnaði ekki fyrr en klukkan 2. Reyndi að sofna klukkan 1, slökkti ljósin og reyndi að sofna í 2 mínútur, gafst þá upp, kveikti og hélt áfram. Dálítið spennandi bók!
Já, og svo er sorglegt að lesa um Diego Maradona, sem var víst nær dauða en lífi í gær. Að mínu mati hæfileikaríkasti knattspyrnumaður allra tíma.
Ummæli (0)
Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu