« Djammmmmmmmyndir | Aðalsíða | Viiiiiiiiiiiiiinna »

Megrunarkúr frá helvíti

maí 05, 2004

Þetta er án efa sá svakalegasti megrunarkúr, sem ég hef séð. Mikið er ég glaður að vera ekki stelpa.


Annars var ég að koma heim eftir að hafa horft á Monaco slá Chelsea út. Ég bara get ekki fyrir mitt litla líf haldið með öðru ensku liði en Liverpool og þess vegna var ég eini maðurinn á barnum, sem gladdist yfir sigri Monaco. Samt, þá var ég alltaf að hugsa: Djöfullinn maður, Liverpool gæti unnið öll þessi lið!


Annars fer sætum stelpum nú fjölgandi í World Class, meira að segja í hádeginu! Ætli það tengist sumrinu, prófum eða fegurðarsamkeppnum? Hvað sem það er, þá er þetta yndisleg þróun.

Mér er alltaf sagt að það séu mun fleiri sætar stelpur á kvöldin en ég er einfaldlega alltaf uppgefinn eftir vinnu og nenni aldrei í ræktina. Já, þetta er erfitt og snúið líf. Það vantar samt fleiri sætar stelpur í hádegin í World Class! Er ekkert réttlæti í þessum heimi?


Já, og svo vil ég mótmæla því sem stuðningsmaður George Bush sagði um að myndin af mér og Jensa væri Gay!. Við verðum bara svona fokked upp af rommi.

Einar Örn uppfærði kl. 21:46 | 187 Orð | Flokkur: Netið



Ummæli (6)


immit ætla ég að byrja í þessum efnaskiptakúr um leið og ég er orðin gömul. eftir 6 daga.

beta sendi inn - 06.05.04 13:06 - (Ummæli #1)

Mér fannst þessi mynd ekki sérstaklega gay, en þú ert aftur á móti eins og átta ára strákur á henni. Sem er eiginlega bara sætt.

Hildur sendi inn - 06.05.04 19:52 - (Ummæli #2)

Nauts, ég lít út fyrir að vera allavegana 15 á þessari mynd! :-)

Einar Örn sendi inn - 06.05.04 20:33 - (Ummæli #3)

sko strákavinir mínir eru með megranir miiiiiklu meira á heilanum en ég => það eru ekki allar stelpur í krónískri megrun

katrín sendi inn - 06.05.04 20:56 - (Ummæli #4)

Kræst, hvað er að vinum þínum? :-) Ég held að flestir strákar hugsi um útlitið, en ég þekki fáa (að ég held engan) sem hafa actually farið í megrun. Held að það sé aðeins meira vit í því að reyna að hreyfa sig aðeins. :-)

Einar Örn sendi inn - 06.05.04 21:14 - (Ummæli #5)

þeir eru sko að hreyfa sig en éta líka gulrætur og sjitt í staðin fyrir venjulega hamborgarann:Þ

katrín sendi inn - 07.05.04 09:18 - (Ummæli #6)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu