« Nooomah! | Aðalsíða | Verið hrædd! (framhald) »

Verið hrædd! Verulega hrædd!

ágúst 03, 2004

Þetta er alveg hreint ótrúlega magnað: US terror plot intelligence ‘old’.

Fyrir þá, sem nenna ekki að lesa þetta, þá voru allar þær viðvaranir, sem gefnar voru út í Bandaríkjunum um helgina (um að hryðjuverkamenn ætluðu að ráðast á fjármálafyrirtæki) byggðar á upplýsingum, sem voru fjögurra ára gamlar!

Þetta passar svo vel eitt af meginþemum Fahrenheit 9/11 að það er ekki fyndið. Það er, að það hentar stjórnvöldum afar vel að halda almenningi alltaf hræddum.

Það er líka ekki fræðilegur möguleiki að tímasetningin á þessum viðvörunum sé tilviljun, svona rétt eftir landsþing Demókrata. Það hafði jú lekið frá Hvíta Húsinu að æskilegt væri t.a.m. að ná Osama Bin Laden í Júlí, helst þegar á ráðstefnu Demókrata stæði.

Ég veit að ég hef varið Bandaríkin og stefnu þess lands ansi lengi. En það er bara ekki hægt að verja þessa brjálæðinga. Það er með ólíkindum að það skuli enn vera 50% af bandarísku þjóðinni, sem er ekki enn búin að fatta að stjórnvöld eru að leika sér að þeim.

Einar Örn uppfærði kl. 14:04 | 168 Orð | Flokkur: Stjórnmál



Ummæli (3)


eru það ekki 50% bandarískra kjósenda eða um fjórðungur Bandaríkjamanna sem standa að þessu …???

Arnljótur Bjarki sendi inn - 03.08.04 15:49 - (Ummæli #1)

Samkvæmt skoðanakönnun styðja rétt undir 50% allra Bandaríkjamanna enn Bush og hans ríkisstjórn. Svo er náttúrulega annað mál að aðeins helmingur af því fólki mun mæta á kjörstað.

Einar Örn sendi inn - 03.08.04 16:06 - (Ummæli #2)

Það er ok, Bush þarf ekki einu sinni 50 prósent kjósenda til að sigra…

Btw. Það er rétt hjá þér að það er ekki í lagi með þetta þjóðfélag. Erfiðara auðvitað að halda því fram þegar maður hefur búið þar og upplifað góðu hliðarnar (því þær eru ófáar) …en á endanum skipta þær náttúrlega ekki jafn miklu máli og þær slæmu. Ekki satt?

Ragnar sendi inn - 03.08.04 22:30 - (Ummæli #3)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu