« ágúst 16, 2004 | Main | ágúst 19, 2004 »

Sund á Ólympíuleikunum

ágúst 17, 2004

Ţrátt fyrir ađ pabbi minn hafi veriđ margverđlaunađur sundmađur, ţá hef ég alla ćvi veriđ blessunarlega laus viđ áhuga á sundi (auk ţess, sem ég er alveg skuggalega lélegur sundmađur).

Ţetta blogg hjá Sverri Jakobs um sundkeppnina á Ólympíuleikunum minnti mig á ađ setja fram byltingarkennda breytingatillögu mína á sundíţróttinni, sem ég hef veriđ ađ velta fyrir mér síđustu daga.

Mér hefur nefnilega alltaf fundist ţetta verđlaunaflóđ í sundi vera fáránlegt. Ţađ er međ ólíkindum ađ hćgt sé ađ vinna kapp yfir sundlaug međ mismunandi hćtti. Ţetta flugsunds, baksunds, skriđsunds dćmi er fáránlegt. Ţetta er álíka og ađ keppt vćri í 100 metra hlaupi, ţar sem allir ćttu ađ hlaupa venjulega, svo taka háar hnélyftur og ţví nćst valhoppa á leiđarenda.

Ţađ sjá allir ađ ţetta er tóm steypa og ađeins gert til ađ verđlaunasafn sundfólks sé veglegra en annars íţróttafólks.

Ţví legg ég til eftirfarandi breytingartillögu:

Ađeins verđur keppt í einni sundgrein á Ólympíuleikunum. Sú keppni er 100 metra sund međ frjálsri ađferđ. Ef einhver er fljótastur í skriđsundi, ţá syndir hann skriđsund og ef einhver er fjótari í flugsundi, ţá syndir hann ţannig. Ţarna yrđi á einfaldan hátt hćgt ađ sjá hver besti sundmađurinn er, og hćgt vćri ađ gera keppnina mun meira spennandi.

Ţađ nennir nefnilega enginn mađur ađ horfa á 10 greinar í sundi. Ef ţetta vćri bara ein grein, ţá myndi ég meira ađ segja horfa og ţá gćti ég sagt ykkur hver vćri bestur í sundi.

242 Orđ | Ummćli (5) | Flokkur: Íţróttir

EOE.is:

Blađur um hagfrćđi, stjórnmál, íţróttir, netiđ og mín einkamál.

Á ţessum degi áriđ

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síđustu ummćli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33