« Saga Serrano | Aðalsíða | Jakkafataþreyta »

Nei, Hannes, nei

15. desember, 2004

Jæja, þá er komið að því að veita hin árlegu verðlaun eoe.is fyrir leiðinlegustu frétt ársins. Verðlaunin í ár hlýtur:

Öll umfjöllun um bók Hannesar Hólmsteins um Halldór Laxness!!!

Jiminn eini, hvað þetta er þreytt umræða. Var ekki nóg að eyða síðustu jólum í þetta röfl. Rifrildi á milli bókmenntafræðinga er ekki athyglisvert fréttaefni, sama hverjir eiga í hlut. Takk fyrir.

Einar Örn uppfærði kl. 14:53 | 61 Orð | Flokkur: Bækur



Ummæli (3)


Þetta rifrildi kemur bókmenntafræðingum ekkert við, né bókmenntafræðinni. Það eina sem tengir þetta við bókmenntafræðina er það að Helga Kress, sem ráðist hefur hvað harkalegast á HHG er eins langt til vinstri og hægt er að hugsa sér, og svarinn pólitískur erkióvinur HHG innan Háskólans, skilst okkur sem erum í bókmenntafræðinni. Við höfum þá vitneskju eftir öðrum kennurum, sem hlýtur að teljast sæmileg heimild…

Og ég ætla rétt að vona að þú hafir ekki verið að gefa í skyn að bókmenntafræðin sé leiðinleg?!?!? :-)

Nei, ókei, ég viðurkenni það samt að þetta var algjörlega langleiðinlegasta umræða ársins. Fyrir utan forsetakosningarnar hér heima, sem hefðu getað gert hvern mann brjálaðan ef þessar kosningar hefðu ekki verið svona óspennandi…

Kristján Atli sendi inn - 15.12.04 15:08 - (Ummæli #1)

Æ já, þetta bókmenntafræðis dæmi er auðvitað bara útaf þessari Helgu Kress.

Bókmenntafræði er eflaust ágætis fag, en þetta röfl um Hannes er bara svo leiðinlegt að maður fær óbeit á öllum þeim hugtökum, sem tengjast því :-)

Einar Örn sendi inn - 15.12.04 15:21 - (Ummæli #2)

Ímyndaðu þér þá hvernig það var fyrir mig (og fleiri) að sitja í tímum hjá Helgu Kress í vor þegar þetta stóð sem hæst… ef einhverjum varð á að nefna þetta mál á nafn gat maður gleymt því að heyra fyrirlestur um námsefnið. Það var bara “ritstuldur þetta” og “Hannes hitt” í tvo tíma…

Kristján Atli sendi inn - 15.12.04 16:53 - (Ummæli #3)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Nýjustu Flickr myndirnar

Scriptless Flickr Badge
Scriptless Flickr Badge

Á þessum degi árið

2005 2003 2002

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.