« janúar 25, 2005 | Main | janúar 27, 2005 »

Ferðadansmyndband

janúar 26, 2005

Þetta myndband er ÆÐI!!!
(36 mb. Windows Media).

Mæli með þessu fyrir alla. Mig langaði til að pakka oní ferðatösku og byrja að ferðast um leið og ég kláraði að horfa á þetta. Algjör snilld :-) (via Mefi)

38 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Ferðalög

Össur bloggar

janúar 26, 2005

Ja hérna, Össur Skarphéðinsson, Krataforingi er byrjaður að blogga. Hann byrjar af krafti og það er meira að segja hægt að kommenta við allar færslur. Hægt er að nálgast RSS skrá hér.

Össur skrifar þetta í stuttum og hnitmiðuðum bloggstíl og hann fellur ekki í þá gryfju, einsog aðrir pólitíkusar, að skrifa á heimasíður sínar einsog þeir séu að skrifa í Morgunblaðið. Björn Bjarna skrifar reyndar meira í bloggstíl, en pistlarnir hans eru alltaf svo fáránlega langir að ég gefst upp á lestrinum.

Mér líst vel á þetta framtak hjá Össuri og það sýnir vissulega kjark að hafa opið fyrir komment. Ég veit ekki hvað það er, en mér finnst stjórnmálamenn alltaf setja sig í alltof hátíðlegar stellingar í skrifum á heimasíðurnar sínar. Össur virðist vera óformlegri í þessum skrifum og fyrir vikið verður þetta að ég held skemmtilegra.

Svona við fyrsta lestur virkar síðan sæmilega áhugaverð, sem er mjög ólíkt þeim skrifum, sem tíðkast. Langflottast væri náttúrulega að fá blogg frá ungu þingmönnunum, sem væri skrifað einsog þeir væru actually yngri en fimmtugt. Ef að það væri til dæmis ekki mynd uppí horninu, þá væri erfitt að gera sér grein fyrir því (eftir lestur síðunnar) að Dagný þingkona skuli bara vera 28 ára gömul.

Væri ekki gaman að sjá bloggsíður hjá ungu þingmönnunum, sem sýndu okkur að þau væru actually einsog flest ungt fólk? Væri ekki gaman að fá blogg frá Dagnýju þar sem hún hneykslast yfir Bachelorette eða frá Ágústi Ólafi, þar sem hann talar um sætu stelpurnar á Austurvelli? Þetta fólk hlýtur að hafa um eitthvað meira spennandi að skrifa en einhverja stjórnmálafundi útí bæ. Ég efast ekki um að þessir þingmenn myndu fá fleiri heimsóknir á síðurnar sínar og myndu njóta meira fylgis ef að skrif þeirra væru ekki jafn hátíðleg.

295 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Netið

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33