« janúar 27, 2005 | Main | febrúar 03, 2005 »
Föstudagskvöld
Tvö kvöld í röð hef ég lent í því að vinna með laptop-tölvuna fyrir framan sjónvarpið, þar sem ég þarf að undirbúa ansi marga fundi fyrir næstu daga. Í gær var það American Idol, sem ég sat undir, en í kvöld hið íslenska.
Eru menn ekkert að grínast með það hversu miklu skemmtilegra American Idol er? Reyndar þá eru keppnirnar á sitthvoru stiginu, þannig að það skýrir smá muninn. Fyrir kvöldið í kvöld hafði ég aldrei enst í gegnum meira en 15 mínútur af þessu íslenska Idol-i, en í kvöld horfði ég á allan þáttinn. Ameríska Idol-ið er frábær skemmtun og ótrúlega fyndið, en íslenska Idol-ið nær ekki þeim hæðum. Er nokkuð sammála Hagnaðinum í áliti mínu á þessum keppnum. Ég átta mig ekki almennilega á obsessjóni Íslendinga á þessari keppni.
Annars er ég að fara út í fyrramálið til Kölnar (via London). Verð í Köln í fjóra daga, fer þá til Frankfurt og ætla svo að eyða næstu helgi í Prag.
Ég verð að komast í nettengingu vegna vinnunnar, hvort sem það er boðið uppá hana á hótelunum eður ei. Þannig að ég mun vonandi geta uppfært eitthvað á meðan á ferðinni stendur.
Já, og þetta er magnað.
Bandarísk útgáfa af The Office
Hérna er fyrsti þátturinn af bandarísku útgáfunni af The Office (38 mb., Windows Media).
Það þarf sennilega ekki að koma neinum á óvart að breska útgáfan er sirka hundrað sinnum betri.
Leit:
Síðustu ummæli
- Kristján Atli: Til hamingju Sigurjón! Þér var hlíft við þessu óþa ...[Skoða]
- Einar Örn: Sigurjón, þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur. ...[Skoða]
- Sigurjón: Æ æ æ æ .... Ef niðurstaðan verður Man Utd vs Liv ...[Skoða]
- Einar Örn: Takk ...[Skoða]
- einsidan: Til hambó með þetta ...[Skoða]
- Gaui: Skál fyrir því, Einar minn! ...[Skoða]
- Hjördís Yo: ó já! Ég elska sko líka Liverpool !! ...[Skoða]
- Gummi: Jamm, var lengi að jafna mig á rangstöðunni. En Re ...[Skoða]
- Fannsa: Ömurlegt þegar dómarinn dæmdi ranglega rangstöðu.. ...[Skoða]
- Snorri: Ég sé EKKI fyrir mér að Árni komist inn á þing til ...[Skoða]
Flokkar
Almennt | Bækur | Dagbók | Ferðalög | Fjölmiðlar | Hagfræði | Íþróttir | Kvikmyndir | Liverpool | Myndablogg | Myndir | Netið | Sjónvarp | Skóli | Stjórnmál | Tónleikar | Tónlist | Topp10 | Tækni | Uppboð | Viðskipti | Vinna |Gamalt:
Topp 10:
Ég nota MT 3.33