« febrúar 24, 2005 | Main | febrúar 27, 2005 »
Gleraugu
Ok, prófaði að taka mynd af mér með gleraugun. Það er eitthvað yndislega sorglegt að vera að velta fyrir sér gleraugnakaupum á laugardagskvöldi, en hverjum er svo sem ekki sama
Allavegana, þetta eru önnur af tveim gleraugum, sem koma til greina. Fékk þau lánuð og miðarnir eru enn á glerjunum, þannig að það skemmir aðeins fyrir.
Hmmmm… Er þetta ég? Veit ekki alveg. Finnst ég virka eldri og gáfaðari en vanalega. Veit ekki hvort það sé gott.
Einar Örn fer næstum því á Idol
Í gærkvöldi fór ég næstum því á Idol. Málið er að ég er í stjórn starfsmannafélagsins í vinnunni og við skipulögðum ferð á Idol fyrir allt fólkið. Ég ætlaði ekki að fara, en það var skotið mikið á mig þar sem að ég væri ekki að mæta á atburði, sem ég hjálpaði við að skipuleggja.
Allavegana, ég mætti í mat á Pizza Hut og síðan var planið að fara á Idol. Svona 5 mínútum áður en þetta byrjaði leit ég á miðann og röðina og hugsaði svo með mér: Nei andskotinn, ég get ekki setið í gegnum þetta.
Ég hef aldrei getað horft á meira en 10 mínútur af þessum Idol þætti og mér leist hreinlega ekkert á að sitja undir þessu í einhverja klukkutíma. Ég fór því heim. Rölti seinna um kvöldið á skemmtun hjá Ungum Jafnaðarmönnum, sem var fín. Kíkti svo með PR, Litlu PR og fleira fólki á Ara í Ögri. Að ég held í fyrsta skipti, sem ég fer á þann stað síðan ég útskrifaðist úr Verzló.
Mig minnir að við höfum aðallega farið á þann stað vegna þess að við komumst alltaf inn og það var aldrei neinn þarna inni og því gátum við alltaf fengið borð. Allavegana, þá virðist staðurinn hafa breyst mikið og hann kom mér á óvart. Allt stappað og fullt af sætum stelpum. Þegar ég var að labba heim missti ég iPodinn minn í götuna og því er hann bilaður í annað skiptið á fjórum vikum. Ég er hálfviti!
Fór svo í gleraugnakaup í dag og fékk ein gleraugu lánuð heim. Ætla að prófa þau yfir helgina, þar sem ég erfitt að venjast þeirri tilhugsun að vera með gleraugu.
Á morgun er það úrslitaleikur í deildarbikarnum. Get ekki beðið!
Leit:
Síðustu ummæli
- Kristján Atli: Til hamingju Sigurjón! Þér var hlíft við þessu óþa ...[Skoða]
- Einar Örn: Sigurjón, þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur. ...[Skoða]
- Sigurjón: Æ æ æ æ .... Ef niðurstaðan verður Man Utd vs Liv ...[Skoða]
- Einar Örn: Takk ...[Skoða]
- einsidan: Til hambó með þetta ...[Skoða]
- Gaui: Skál fyrir því, Einar minn! ...[Skoða]
- Hjördís Yo: ó já! Ég elska sko líka Liverpool !! ...[Skoða]
- Gummi: Jamm, var lengi að jafna mig á rangstöðunni. En Re ...[Skoða]
- Fannsa: Ömurlegt þegar dómarinn dæmdi ranglega rangstöðu.. ...[Skoða]
- Snorri: Ég sé EKKI fyrir mér að Árni komist inn á þing til ...[Skoða]
Flokkar
Almennt | Bækur | Dagbók | Ferðalög | Fjölmiðlar | Hagfræði | Íþróttir | Kvikmyndir | Liverpool | Myndablogg | Myndir | Netið | Sjónvarp | Skóli | Stjórnmál | Tónleikar | Tónlist | Topp10 | Tækni | Uppboð | Viðskipti | Vinna |Gamalt:
Topp 10:
Ég nota MT 3.33