« "I've been chatting online with babes all day" | Aðalsíða | Menn á náttfötum »
Gleraugnakaup
Ok, ég keypti mér semsagt gleraugu í vikunni. Fékk mér Oakley gleraugu. Ég er verulega sáttur við þau og er svona aðeins að venjast þeirri tilhugsun að vera með gleraugu.
Ég þarf þó alls ekki að vera með þau daglega. Einungis þegar ég er að horfa á sjónvarpið, á fundum og slíkt. Svo er aldrei að vita nema maður tefli þessum gleraugum fram sem leynivopni í viðræðum við bankastjóra og aðra virðulega menn í þeirr von að ég líti út fyrir að vera eldri og gáfaðari en ég er í raun. Allavegana, svona lít ég út í dag (smellið til að fá eeeennn stærri mynd)
Það er svo sem ekki oft, sem ég rekst á nýjar bloggsíður, sem ég bæti við RSS listann minn. En þessi síða: Magga H og hausinn hennar er snilld.
Spurning dagsins: Af hverju eru aldrei sætar stelpur í Vesturbæjarlauginni (a.m.k. ekki þegar ég er þar). AF HVEJRUUUUUUUU?
Ummæli (4)
Flott gleraugu, flott rödd, flottur strákur, hvað getur maður sagt? (smá Idol komment) Já Magga er þrusa. Það geta ekki allir skrifað skemmtilega um inngróna tánögl
Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu
Ef þetta vandamál þjakar þig mikið þá bendi ég á Árbæjarlaugina.
Strumpakveðjur