« Hallgrímur og ungliðarnir | Aðalsíða | Svíðþjóð »

Bönnum þetta!

22. mars, 2005

Ég legg hér með til að eftirfarandi sjónvarspefni verði bannað:

  • Auglýsingar, þar sem litlir krakkar syngja jóla- eða páskalög
  • Viðtöl við lítil börn í fréttatímum, þar sem þau eru spurð hvort þau viti hver ástæða hátíðahalda um jól eða páska sé.
  • Öll viðtöl við borgarfulltrúa, sama hvort þeir séu í R-listanum eða Sjálfstæðisflokknum. Þau eru öll jafn slæm.

Hvað þarf maður annars að vera gamall til að finnast óskyld börn vera sæt eða skemmtileg?

Einar Örn uppfærði kl. 20:11 | 77 Orð | Flokkur: Sjónvarp



Ummæli (10)


Ég held að ég verði að taka undir þetta allt saman. Bara að koma þessum fyrirmælum til skila.

Óli Gneisti sendi inn - 22.03.05 20:29 - (Ummæli #1)
Öll viðtöl við borgarfulltrúa, sama hvort þeir séu í R-listanum eða Sjálfstæðisflokknum. Þau eru öll jafn slæm.

Öll viðtöl sem tengjast borgarmálum yrðu þá semsagt við Ólaf F. Magnússon, borgarfulltrúa úr Frjálslynda flokknum :-)

Pétur Steinn sendi inn - 22.03.05 20:36 - (Ummæli #2)

Nei, Guð hjálpi okkur!!! :-)

Ég hefði átt að hafa þetta “Öll viðtöl við borgarfulltrúa” - punktur. :-)

Einar Örn sendi inn - 22.03.05 20:53 - (Ummæli #3)

nei hvað meinaru þetter svo æðislega sætt og krúttalegt:-)

katrín sendi inn - 22.03.05 22:32 - (Ummæli #4)

Hehe - þú ert með rosalega fordóma gegn þessari jóla/páskastelpu…

Scweppes sendi inn - 22.03.05 23:14 - (Ummæli #5)

er þetta ennþá krakkinn hans þorsteins joð? alveg sem krakkinn fer í taugarnar á mér

katrín sendi inn - 23.03.05 09:14 - (Ummæli #6)

Æi þessi sem var í jólaauglýsingunum og pínir upp hlátur í endann. Mér fannst þetta ágætt í fyrsta skipti en það er búið að blóðmjólka þetta alltof mikið. Ég meina fílsungar eru alveg sniðugir en þú myndir ekki vilja hafa einn á heimilinu sjáðu…

Scweppes sendi inn - 23.03.05 10:44 - (Ummæli #7)

Hvað er þetta! Mér finnst stelpan dæmalaust krútt og hún angrar mig ekki hið minnsta. Brosið bara og hafið gaman af, ekki látra óþarfa hluti pirra ykkur!

RG sendi inn - 23.03.05 17:18 - (Ummæli #8)

veistu .. flest börn (jafnvel mitt eigið stundum) eru huuuuuundleiðinleg .. mig grunar að það eldist ekki af manni..

Emma sendi inn - 23.03.05 21:47 - (Ummæli #9)

Ok, ágætt að vita það. :-)

Einar Örn sendi inn - 23.03.05 22:14 - (Ummæli #10)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu