« Sinatra á kvöldin | Aðalsíða | Hólí fokking krapp! »

5 daga frí

24. mars, 2005

Ég er ekki mikill frí-á-Íslandi maður. Ég lifi fyrir sumarfrí og ferðalög, en ég veit hins vegar ekkert hvað ég á að gera með þessi 4-5 daga frí, sem koma upp tvisvar á ári hér á Íslandi.

Byrjaði daginn á körfubolta með vinum mínum, sem var góð byrjun og sá til þess að ég fór allavegana útúr húsi. Núna veit ég hins vegar ekkert hvað ég á að gera við restina af fríinu. Það er sól í Vesturbænum og því fæ ég samviskubit við að horfa á sjónvarpið. Einnig er ég viss um að ég fæ samviskubit ef ég klára ekki tvö verkefni, sem ég hef dregið ansi lengi.

Foreldrar mínir, öll systkin og börn þeirra eru erlendis. Það er hreinlega magnað. Ég er því eini fjölskyldumeðlimurinn á Íslandi, þannig að varla kvarta ég yfir offramboði á matarboðum.

Ég er eiginlega hálf fúllt útí sjálfan mig fyrir nýta ekki fríið í að fara til útlanda. En ég meina hey. Ég reyni bara að gera eitthvað gagnlegt.


Þetta blogg er snilld.

Já, og stelpur. Ef ykkur vantar dagatal, þá mæli ég með þessu.

Einar Örn uppfærði kl. 14:50 | 182 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (7)


Guðrún Veiga er með þeim fyndnari .. ég veina yfir hverri einustu færslu!!

Emma sendi inn - 24.03.05 16:06 - (Ummæli #1)

Jammm, ég rakst á síðuna í gegnum þitt blogg, Emma. Ég las mig alveg aftur í október. Það er semsagt líka fyndið fólk á Austfjörðum. :-)

Annars fyndið, held að öll þau blogg sem ég les daglega séu hjá fólki af höfuðborgarsvæðinu. Ætli einhverjir leyndir fordómar leynist í þessu hjá mér.

En já, mæli með Guðrúnu. Fyndnasta blogg, sem ég hef séð lengi.

Einar Örn sendi inn - 24.03.05 16:17 - (Ummæli #2)

Já, hver er meira sexy en David Hasselhof?!

RG sendi inn - 24.03.05 18:10 - (Ummæli #3)

Mér finnst að Íslendingar ættu ekki að blogga um páskafrí, bara svona af tillitssemi við Íslendinga í Bandaríkjunum sem fá bara venjulegt helgarfrí. :-)

Erna sendi inn - 24.03.05 18:53 - (Ummæli #4)

almáttugur. ég bara roðna…

guðrún veiga sendi inn - 24.03.05 18:54 - (Ummæli #5)

Þetta dagatal fékk mig til að hrylla bæði við hvolpum og jólasveinabúningi, held að Hasselhofinn kalli ekki það besta fram í mér. :-)

SB sendi inn - 24.03.05 19:33 - (Ummæli #6)

Erna, ég finn til með þér. Ég hef þurft að fara í gegnum frílausa bandaríska páska nokkrum sinnum :-)

Og já, þessi jólasveinabúningur hans Hasselhoff er æði!

Einar Örn sendi inn - 24.03.05 21:53 - (Ummæli #7)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu