« Aukinn hraði | Aðalsíða | Afhommun í sjónvarpi »

Spurningalisti

6. apríl, 2005

Jæja, þá er síðan með Ungfrú Reykjavík komin upp. Ég get nú lítið talað um að sú keppni sé sponsor-uð, nema þá að K sé eitthvað að styrkja keppnina.

En allavegana, hver keppandi fær þennan líka ljómandi skemmtilega spurningalista, sem þær svara misvel. Þar sem ég hef ekki skrifað inn neitt af viti undanfarna daga ætla ég að spreyta mig á listanum:


Foreldrar: Einar Kristinsson & Ólöf Októsdóttir

Nám-Vinna: Markaðsstjóri

Áhugamál: Fótbolti, Ferðalög, tónlist, aðrar íþróttir

Draumastarfið: Forstjóri míns eigin risafyrirtækis

Draumabíllinn: Skiptir ekki máli, bara að ég verði með einkabílstjóra svo ég sleppi við að keyra sjálfur. Það er mikilvægast

Uppáhaldsmaturinn: Burrito á Serrano, hvað annað? Jú, og nautasteik. Já, og hamborgari á Johnny Rockets. Já, og BBQ Chicken Pizza á California Pizza Kitchen. Já, og Arroz con Pollo auðvitað. Já, og ekta mexíkóskar tacos á taqueria í Mexíkó.

Er Ísland ævintýraland?: Eflaust.

Hvað er tíska? Kræst, næsta spurning.

Hvernig er fullkominn laugardagur: Hmmm… þetta er erfitt. En ok: Natalie vekur mig um morguninn og vill ólm sofa hjá mér. Hvað getur maður gert?

Ég fer svo framúr og kveiki á sjónvarpinu. Horfi þar á Liverpool vinna Manchester United 6-0. Milan Baros skoraði þrennu og Roy Keane tvö sjálfsmörk. Alex Ferguson gleypir tyggjó. Fæ mér bjór.

Ákveð svo að skella mér í göngutúr um nágrennið. Kíki á ströndina, þar sem allar stelpurnar dást að ótrúlega lögulegum líkama mínum. Verð að afþakka nokkur boð um “guilt-free” kynlíf, þar sem ég og Natalie eru jú par. Hitti vini mína og við spilum fótbolta saman.

Um kvöldið förum við Natalie svo saman útað borða á ástralskt steikhús og borðum æðislegar steikur og drekkum rauðvín. Öllum á óvart, þá mætir Frank Sinatra á svæðið og tekur nokkur lög, bara fyrir okkur tvö.

Við kíkjum svo útá næturlífið og endum með okkar vinum á salsa stað, þar sem við dönsum stanslaust salsa og merengue langt fram á morgun.

Hvernig ætlar þú að slá í gegn?: Með því að skrifa um sjálfan mig á netinu. Já, eða verða þekktur fyrir mikið viðskiptavit.

Hver er þekktasta persónan sem þú hefur séð? Ok, ég hef séð ansi marga. Sá páfann í Venezuela, Fujimori í Venezula, Bob Dylan í Kansas og Bono í Chicago. En ef það er átt við hvort maður hafi heilsað viðkomandi, þá myndi ég segja Lauryn Hill og Wyclef þegar ég sat og spjallaði við þau á leið til New York. Og Luke Wilson, sem ég sat með í leigubíl.

Hver er besta bíómynd, sem þú hefur séð? Ya llego la feria, 110 mínútur af stórkostlegum tékkneskum leiðindum frá 1960, sem ég sá á Kúbu. Ah, ok, besta myndin. Ok, það er Pulp Fiction.

Er eldhúsið staður fyrir konur? Jammm, alveg eins. Þær mega samt líka alveg vera á fleiri stöðum.

Lístu sjálfum þér með einu orði: Magnaður!


Annars þá hlýtur þessi stelpa að vinna.

Einar Örn uppfærði kl. 22:04 | 471 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (7)


Þú þarft að neita guilt-free kynlífi af því að þú ert á föstu … er það þín hugmynd um fullkominn laugardag?!?!?

Skiliggi…. :-)

Kristján Atli sendi inn - 06.04.05 22:36 - (Ummæli #1)

Jamm, Natalie verður alveg brjáluð þegar ég svo mikið sem tala við aðrar stelpur :-)

Einar Örn sendi inn - 06.04.05 22:53 - (Ummæli #2)

Gaman að því að þú skulir nefna Californina Pizza Kitchen sem einn af uppáhaldsstöðunum!! Ég hef einmitt fjárfest talsvert í hlutabréfum í þeim ágæta stað!! Staður með mikla framtíð!! :-)

Ívar sendi inn - 06.04.05 22:55 - (Ummæli #3)

Sammála með Johnny Rockets. Skemmtilegur staður…. Sérstaklega tómatsósutrikkið hjá þjónustufólkinu. :-)

CPK er líka alger snilld. Fékk mér einmitt þessa BBQ chicken pizzu í Orlando í haust. Stefni á að gera mína eigin innan 8 mánaða. :-)

Hagnaðurinn sendi inn - 07.04.05 00:07 - (Ummæli #4)

Jamm, ég keypti mér einmitt einhverja bók, sem hét “secret restaurant recipes”, einungis til að geta gert BBQ Chicken Pizzu. Hef átt bókina í tvö ár en aldrei nennt að búa pizzuna til. Held að ég hafi opnað bókina einu sinni :-)

Einar Örn sendi inn - 07.04.05 10:45 - (Ummæli #5)

Voðalega ert þú víðförull og veraldarvanur maður..er ennþá á því að koma með þér í næsta ferðalag :-)

RG sendi inn - 08.04.05 22:54 - (Ummæli #6)

Ok, ekkert mál. Annars held ég að þetta sé í fyrsta skipti, sem ég er kallaður veraldarvanur :-)

Einar Örn sendi inn - 09.04.05 13:28 - (Ummæli #7)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu