« Hótelherbergi í Varsjá | Aðalsíða | Norðurlöndin geta líka verð ágæt »

Túristast um Varsjá

22. apríl, 2005

Leigubílstjórinn, sem keyrði mig að Kastalatorginu í morgun var ekki beinlínis yfirsig ástfanginn af Varsjá. Óspurður sagði hann að Varsjá væri “depressing city” og að þar væri ekkert að sjá. Ég veit ekki hvort ég er sammála honum, en þó hefur borgin yfir sér einkennilegan brag. Ég myndi sennilega ekki eyða mörgum dögum hérna sem túristi, en hún hefur vissulega uppá fullt af áhugaverðum hlutum að bjóða fyrir stutt ferðalag líkt og mitt.

Ég vann í morgun en var kominn út um hádegið. Fékk leigubíl til að keyra mig uppað gamla miðbænum. Sá miðbær var algjörlega eyðilagður eftir Varsjár uppreisnina við lok Seinni Heimsstyrjaldarinnar, en borgarbúar tóku sig til og endurbyggðu bæinn í sinni gömlu mynd eftir stríð. Sú endurbygging tókst svo vel að bærinn er á lista Unesco.

Miðbærinn er mjög heillandi. Ekki ósvipaður gamla miðbænum í Prag, þrátt fyrir að vissulega sé hann ekki jafn tilkomumikill. En byggingarnar bera þess engin merki að vera eftirlíkingar af þeim byggingum, sem þarna stóðu fyrir 200 árum.

Ég labbaði þarna um í góðan tíma, tók myndir og fylgdist með mannlífinu.


Labbaði því næst nokkur hundruð metra að minnismerki um Varsjár uppreisnina (Síðan, sem ég bendi á inniheldur mikið af góðum upplýsingum um uppreisnina, þar með talið myndefni. Mæli með henni (The Pianist, sem er frábær bíómynd fjallar einnig um þessa atburði)). Uppreisnin fór fram 1944 þegar illa búnir Varsjárbúar réðust á þýska herliðið í borginni. Upphaflega gekk uppreisnin vel og bjuggust Varsjárbúar við að Sovétmenn, sem voru staðsettir í rétt fyrir utan borgina myndu hjálpa þeim. En Sovétmennirnir komu aldrei til hjálpar, heldur biðu þeir á meðan að Þjóðvernarnir drápu yfir 250.000 borgarbúa.

Pólverjarnir gáfust að lokum upp og voru sendir í fangabúðir. Eftir að allir Varsjárbúar voru farnir hófu Þjóðverjarnir kerfisbundna eyðileggingu borgarinnar. Engin bygging fékk að standa.

Því er dálítið merkilegt að labba þarna um miðbæinn. Varsjárbúar notuðust við allt, sem þeir gátu, til að endurbyggja borgina. Þannig að í húsunum sem standa þar í dag eru notaðir múrsteinar, sem voru grafnir uppúr rústunum eftir alla eyðilegginguna. Magnað til þess að hugsa. Það verður ekki hjá því komist að dást að dást að Pólverjum þegar maður hugsar til þess hvað þeir hafa gengið í gegnum.


Eftir að hafa labbað um miðbæinn rölti ég tilbaka í átt að hótelinu. Skoðaði minnismerki, sem hafði verið reist um Páfann og rölti meðfram aðalverslunargötunni.

Eldsnemma fyrramálið á ég flug til Stokkhólms, þar sem ég verð fram á sunnudagskvöld. Ætla að fá mér einn bjór á barnum á 40. hæð fyrir svefninn.

Skrifað í Varsjá, Póllandi klukkan 21.11

Einar Örn uppfærði kl. 18:38 | 424 Orð | Flokkur: Ferðalög



Ummæli (4)


Ekki vill svo skemmtilega til að þú eigir tvífara? Sá strák í Egilshöllinni áðan sem var alveg skuggalega líkur þér…..

Marella sendi inn - 22.04.05 23:46 - (Ummæli #1)
Ætla að fá mér einn bjór á barnum á 40. hæð fyrir svefninn.

Úff, fékk svakalegan Lost In Translation-fíling við þessa setningu. Er að kommenta á þessa færslu þína í vinnunni á laugardagsmorgni, afprýðissamur.

Og er kominn upp minnisvarði um Páfann? Strax? Þeir sóa ekki tímanum í Póllandi, svo mikið er víst…

Kristján Atli sendi inn - 23.04.05 09:21 - (Ummæli #2)

Við fórum fjórar saman í djammferð til Varsjá. Datt í hug að benda þér á að það er frábærlega skemmtilegt næturlíf þarna, flottir klúbbar og flott fólk - mæli með því að þú tékkir á því næst…

Lúx sendi inn - 24.04.05 16:36 - (Ummæli #3)

Marella, ekki svo ég viti :-)

Kristján, þetta var nú meira tímabundið minnismerki. Fannst það allavegana hálf slappt.

Og Lúx, djammferð til Varsjá? Hvernig í ósköpunum datt ykkur það í hug? :-) En kannski að ég kíki á djammið þar næst.

Einar Örn sendi inn - 24.04.05 19:30 - (Ummæli #4)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu