« Íþróttahelgin mikla | Aðalsíða | Minnismerki um Varsjáruppreisnina »

E

9. maí, 2005

Ég elska nýju plötuna með Eels: Blinking Lights And Other Revelations.

Elsk’ana!

33 lög, 90 mínútur af frábærri tónlist. Besta plata ársins hingað til. Ekki nokkur spurning. Hef verið að hlusta á hana síðustu kvöld og ég er loksins núna að skilja almennilega hversu góð þessi plata er. Þið, sem hafið aldrei hlustað á Eels, gefið honum sjens. Þið sjáið ekki eftir því.

Einar Örn uppfærði kl. 22:14 | 63 Orð | Flokkur: Tónlist



Ummæli (5)


Nákvæmlega! You beat me to it! Ætlaði að skrifa ítarlegan pistil um þessa plötu á minni síðu í dag eða á morgun, ég hef ekki hlustað á neitt annað síðan ég keypti hana á fimmtudaginn! Stórgóð plata!

Ég elska E, hann veldur mér aldrei vonbrigðum… þetta er vafalítið hans besta stykki síðan ‘Electro Shock-Blues’ fyrir sjö árum síðan…

Kristján Atli sendi inn - 10.05.05 11:58 - (Ummæli #1)

Jæja, ég skrifað’ann samt….. :-)

Kristján Atli sendi inn - 10.05.05 12:39 - (Ummæli #2)

Jamm, fínn pistill hjá þér. Er einmitt að hlusta á hana núna seinnipartinn í vinnunni. Æði æði æði æði! :-)

Einar Örn sendi inn - 10.05.05 17:12 - (Ummæli #3)

það er rétt…ég sé ekki eftir því. æði! takk:-)

silja sendi inn - 10.05.05 20:41 - (Ummæli #4)

ég tel mig sennilega vera mesta EELS aðdáenda á Íslandi , ota henni að öllum sem ég hitti og því er gaman að vita af öðrum sem kunna að meta snilldina sem Mark Oliver Everett færir okkur.

Blinking Lights er stórkostleg í alla staði, að mínu mati næst besta plata EELS, á eftir Electro-Shock Blues.

Ari Gunnar sendi inn - 12.05.05 23:22 - (Ummæli #5)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu