« Uppáhalds plöturnar mínar | Aðalsíða | Þynnkumeðal »

Ég þarf nörda-aðstoð

10. júní, 2005

Ok, ég er með Firefox á Makkanum. Einsog einn lesandi Liverpool bloggsins benti mér á, þá birtast engir íslenskir stafir í Firefox á Makka. Þetta þrátt fyrir að síður einsog mbl.is og katrin.is birti íslenska stafi eðlilega.

Ég veit að þetta er eitthvað stillingaratriði í Firefox og hefur eitthvað með íslensku stuðning á Mac að gera. En víst að mbl.is og fleiri vefir virka, þá hlýt ég að geta gert eitthvað líka. Veit einhver hvað málið gæti verið? Vantar eitthvað í meta upplýsingar, eða er þetta eitthvað annað?

Öll hjálp mjög vel þegin :-)

Einar Örn uppfærði kl. 19:28 | 94 Orð | Flokkur: Netið



Ummæli (6)


Sæll,

Prufaðu að bæta þessu við undir HEAD á vefnum:

og ef til vill þessu hér:

lang=”is” xml:lang=”is”

á HTML-taggið sjálft, semsagt:

Haukur H. Þ. sendi inn - 10.06.05 20:19 - (Ummæli #1)

Dóhh ….. þetta tekur ekki við HTML-töggum … prufum aftur:

Prufaðu að bæta þessu við undir HEAD á vefnum:

<meta http-equiv=”Content-Type” content=”text/html; charset=iso-8859-1” />

og ef til vill þessu hér:

lang=”is” xml:lang=”is”

á HTML-taggið sjálft, semsagt:

<html lang=”is” xml:lang=”is”>

Haukur H. Þ. sendi inn - 10.06.05 20:21 - (Ummæli #2)

Þú gætir verið með Microsoft fonta inni á vélinni, sem Office pakkinn setur alltaf inn hvort sem maður vill eða ekki. Það eru óþýddir fontar. Annars er þetta búið að koma nokkrum sinnum inn á www.apple.is/umraedur og lausn við þessu örugglega á nokkrum stöðum þar.

DonPedro sendi inn - 10.06.05 20:23 - (Ummæli #3)

Las aðeins betur og skil hvað þú ert að spá.

Hér er allavega umræða um séríslenska stafi og Firefox á makka, en það er ekki tæmandi umræða.

http://www.apple.is/umraedur/viewtopic.php?t=6481&highlight=firefox+islenska

Það er massíft af ámóta vandræðum með Firefox m.a. á frönsku.

Hér er annað sem ég datt á, veit ekki hvort það hjálpar.

http://www.forum4designers.com/archive70-2005-2-192005.html

DonPedro sendi inn - 10.06.05 20:36 - (Ummæli #4)

Ok, takk fyrir aðstoðina, en þetta virkaði ekki, Haukur. Er búinn að setja báða hlutana inní aðalskjalið á þessari síðu, en það virkar ekki.

Og hvað varðar hinar lausnirnar, DonPedro, þá var ég meira að leita að einhverri lausn, sem myndi leysa þetta frá síðunnar hendi, en ekki lausn til að fólk útí bæ gæti lagað þessa hluti á tölvunni hjá sér. Ég var búinn að rekast á þær pælingar áður.

Hins vegar ef þetta virkar á mbl.is, þá finnst mér að ég ætti að geta fengið þetta til að virka á minni síðu.

Einar Örn sendi inn - 11.06.05 11:41 - (Ummæli #5)

OK, ég fattaði hvað málið var hjá mér. Eða hver var munurinn hjá mér og mbl.is

Ég var með letrið “Lucinda Grande” valið hjá mér. Það virðist hins vegar fara í rugl varðandi íslenska stafi í Firefox. Ef ég skipti yfir í eitthvað annað letur, til dæmsi Verdana, þá verður þetta allt í lagi.

Ætla því að fikta mig áfram með Makka pælingarnar, sem þú sendir, DonPedro.

Einar Örn sendi inn - 11.06.05 11:44 - (Ummæli #6)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2003

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.